almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Mig langar til að þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir ræðuna. Ég vil bara segja að samstarf okkar í þessari nefnd og okkar allra hefur verið gott. Ég vil bara leggja áherslu á það að mér hefur fundist mjög gott að vinna með hv. þingmönnum, bæði þeim sem tilheyra minni hluta og meiri hluta. Við höfum fengið fram mjög mörg sjónarmið og það hefur verið farið vel yfir málið þannig að ég vil bara þakka fyrir gott samstarf. Ég vil byrja á að segja það.
Varðandi þau mál sem hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson kom með varðandi upphæðirnar og eignir og annað, þá vil ég benda á það að eignamesta fólkið fékk mjög lítinn hluta af þessari endurgreiðslu í fyrra. Heildarupphæðin sem fór til þeirra sem voru tekjuhæstir var innan við 0,2%, þannig að þessar upphæðir sem fóru til þessa hóps voru mjög lágar en vissulega fékk þessi hópur einhvern pening. Stærsti hlutinn af þessu fór til kvenna og til þeirra sem voru mun eignaminni. Það var litið til þess væntanlega með þessum tekjutengingum af því að fólk sem hefur meiri eignir hefur væntanlega meiri tekjur. Eins og þetta er sett upp núna þá erum við að horfa á mjög miklar tekjutengingar, alveg frá fólki með 100.000 kr. mánuði. Mig langaði til þess að spyrja hv. þingmann: Telur hann að þessi sjónarmið skipti máli í því að við séum sátt við þessa endurgreiðslu?