almannatryggingar.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og samstarfið líka í nefndinni sem er, eins og ég segi, gott og gagnlegt. Ég skil þetta sem hv. þingmaður nefnir. Á endanum, eins og er oft — og ég held að það sé ábyrgðarhluti hjá okkur sem störfum hér inni og erum að sýsla með almannafé — þá eru í raun og veru engar litlar fjárhæðir. Í því sambandi eru þetta reyndar nokkuð háar upphæðir. Það fer líka eftir því við hvað skal miða, hvenær er um eignafólk að ræða. Ef ég skil og man tölurnar rétt þá eru þetta 549 einstaklingar með eigið fé á bilinu 100–200 milljónir sem fengu 85 millj. kr. í jólabónus, 52 með eigið fé á bilinu 200–400 milljónir sem fengu 7,1 millj. kr. í jólabónus og svo eru þessir 11 einstaklingar með eigið fé upp á 400–1000 milljónir sem fengu 1,2 millj. kr. Samanlagt þarna erum við komin upp í 93–94 milljónir. Þetta er bara tala. Bókasafnssjóður — við vorum stolt af okkur, mörg hver, hér inni í þingsal, að hafa varið auknu fjármagni í Bókasafnssjóð rithöfunda. Ef ég man rétt þá held ég að það hafi verið 80 milljónir, það er lægri fjárhæð en þessi hópur sem á þarna 100 milljónir upp í milljarð í eigið fé, eignir umfram skuldir, fékk í þennan svokallaða jólabónus.