almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka svarið. Ég velti því bara fyrir mér vegna þess að eins og frumvarpið er lagt fram þá er þetta eingöngu fólk sem hefur fengið örorkulífeyri, hluta af örorkulífeyri, ellilífeyri eða fengið sjúkra- og endurhæfingargreiðslur. Leiðin sem farin er í að ákveða það hvað fólk á að fá eru bara hreinar tekjur fólks og inni í því eru þá líka tekjur af fjármagni. Þetta er fólk sem er gríðarlega tekjulágt og við vitum það alveg sjálf að við borðum ekki steypu og eignir geta verið metnar nokkuð háar hjá fólki þó að tekjurnar séu ekki til staðar. Ég vil bara vita hvort hv. þingmanni finnist það vera sjónarmið sem getur haft áhrif.