almannatryggingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Þarna er ýmislegt sem ég get tekið undir. Það má svo sem alveg nefna það, ráðherra til hróss, að frumvarpið er efnismeira en það hefur verið undanfarin ár. Það eru auðvitað skiptar skoðanir um það á meðal þeirra sem hafa væntingar um að fá þennan styrk. Til að mynda liggja fyrir umsagnir í málinu þar sem fundið er að þeirri ákvörðun að lögheimilisskráning fyrir 1. nóvember þurfi að vera hér á landi til að njóta greiðslna. Þetta er rétt, það eru líka athugasemdir sem er að einhverju leyti tekist á við en samt ekki efnislega í áliti minni hlutans, að fólk sem þiggur ráðstöfunarfé fær ekki þessar greiðslur. Það er viðkvæmasti hópurinn, hefði maður ætlað. Þá er bara vísað í framkvæmdina eins og hún hefur verið, sem eru auðvitað engin rök.