almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Það er nú kannski ekki bein spurning til hans en ég vil þakka nefndinni fyrir vel unnin störf og gott samstarf. Ég held að það hljóti að vera hægt að setja ný lög og reglur um hverjum eigi að úthluta. Eftir því sem við fengum, eins og útreikningana frá TR, þá eru þetta náttúrlega eingöngu þeir sem eru á bótum eða lífeyri. Eignastöðuna á bak við hvern og einn sjáum við náttúrlega ekki og vissum ekki fyrr en við fengum þetta blað. Maður fékk svolítinn sting í hjartað, ég skal viðurkenna það, því þetta er náttúrlega ætlað þeim sem standa höllustum fæti. En það er líka spurning hvort við getum komið ábendingu inn og breytt þessum reglum.
Þetta var hárrétt þar sem hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson sagði hérna áðan: Þetta var löngu farið út úr nefndinni. Það var þannig að það var ekkert því til fyrirstöðu. En hvorki ráðherra né við höfum dagskrárvaldið hér þannig að við lútum því bara. — En bara enn og aftur, takk fyrir.