almannatryggingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég get auðvitað tekið undir með hv. þingmanni að þegar ég sá þessar tölur í minnisblaðinu rættist það sem mann grunaði, að peningunum væri ráðstafað, eins og ég hef nefnt hér áður, með óskilvirkum og ómarkvissum hætti. Málið er komið í þá stöðu sem það er í núna. Ég ber virðingu fyrir því og væntingum þessa fólks sem þarf sannarlega á þessum fjármunum að halda. En tafir á afgreiðslu málsins eru á ábyrgð hæstv. ráðherra, Ingu Sæland, sem kemur ekki með málið inn á þing fyrr en of seint, í nóvember. Á því ber hún alla ábyrgð. Hún átti að koma með það hingað í október. Þá hefðum við haft betra tóm til að rýna málið og afgreiða kannski með skynsamlegri hætti en nú er lagt upp með. Það bara reyndist ekki hægt sökum verklags ráðherrans. Sjálfum finnst mér það — og ég á ekki að þurfa að sitja undir því að ráðherra í þessari ríkisstjórn sé svo að kenna einstaka þingmönnum hér um eigin handvömm og hvað þá heldur um dagskrárvaldið hér í þinginu. Við í minni hlutanum höfum nákvæmlega ekkert um það að segja hvenær þetta mál fer á dagskrá þingsins. Það hefði hún hæglega getað gert þarna fljótlega eftir að það var tekið út úr nefndinni eða miklu fyrr hefði ráðherrann haft fyrir því að skila því hérna inn til þingsins þannig að við gætum tekið það til viðeigandi meðferðar.