157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

almannatryggingar.

236. mál
[19:38]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Hér er verið að ræða mál sem, eins og fram hefur komið fyrr í umræðunni, kom seint fram en var afgreitt út úr nefnd eftir mjög stutta þinglega meðferð þar. Það er kannski ljóður á meðferðinni og verður á afgreiðslu málsins, verði það afgreitt hér á aðventunni, að mikilvægar upplýsingar bárust nefndarmönnum nokkru eftir að málið var afgreitt úr nefndinni, m.a. upplýsingar frá Tryggingastofnun sem varpa nokkru ljósi á eðli þeirrar eingreiðslu sem hér um ræðir.

Fjallað hefur verið um þetta mál sem jólabónus, eins og fram kom í ágætri lýsingu hv. þm. Sigurðar Arnar Hilmarssonar, og hefur framsögumaður málsins, hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra, eignað sér þetta mál svolítið og mætti af málflutningi hennar draga þá ályktun að hér sé komið mál sem verið sé að leggja fram í fyrsta sinn og tilheyri einhvern veginn jólunum og fari til þeirra sem mest þurfa á því að halda. Ekkert af þessu stenst hins vegar skoðun.

Það kom mér á óvart við þinglega meðferð málsins að heyra að málið ætti í rauninni rætur að rekja til Covid-faraldursins. Þá hafi á þeim tíma verið gefin út ferðaávísun hér eins og menn kannski muna þegar stjórnmálamenn vildu takmarka ferðafrelsi fólks, helst krefjast þess að það ferðaðist innan húss, í mesta lagi innan lands. Þá var gefin út ferðaávísun til að aðstoða fólk við að kaupa sér a.m.k. pylsu og Coca Cola í vegasjoppum landsins og á það var bent að það væri fólk sem hefði sannarlega ekki efni á því að ferðast innan lands. Eins og við þekkjum er jafnvel dýrara að ferðast innan lands í heila viku en að fara á einhverja sólarströnd í útlöndum. Það varð úr að þáverandi ríkisstjórn fól hv. velferðarnefnd að leggja fram frumvarp um eingreiðslu til þeirra sem þá voru metnir kannski verst staddir að þessu leyti, öryrkjar, og var lagt hér fram mál um eingreiðslu til handa þeim sem var samþykkt hér á þinginu. Það var líka um það samið að þessi eingreiðsla yrði skattfrjáls eða ekki tekinn af henni skattur. En þetta var sem sagt til handa þeim sem hafa átt rétt á örorkulífeyri, annars vegar samkvæmt þágildandi lögum um almannatryggingar og hins vegar þeim sem áttu rétt á endurhæfingarlífeyri samkvæmt lögum um félagslega aðstoð eins og þau voru þá, þannig að þetta úrræði var eingöngu ætlað öryrkjum. Árið 2024, á því ágæta kosningaári, var hins vegar ákveðið að gefa svolítið í og bæta við þeim sem áttu rétt á ellilífeyri en frá upphafi hefur þessi greiðsla verið undanþegin skatti og skerðir ekki aðrar bætur í almannatryggingakerfinu. Síðar tók stjórnmálaflokkurinn Flokkur fólksins upp þetta slagorð sem ríkisstjórn síðasta kjörtímabils í rauninni hannaði upp í hendurnar á Flokki fólksins með þessari eingreiðslu sem var bæði skatta- og skerðingarlaus.

Þetta mál, eins og ég hef lýst hérna núna, hófst sem lítið nefndarmál og varðaði miklu færri en um ræðir núna og var miklu lægri fjárhæð. Þetta var einskiptismál sem var lagt fram vegna sérstakra aðstæðna sem voru þá uppi. Þetta mál, eins og er kannski bara eðli þeirra mála sem renna hér í gegnum þingið og varða útgjöld ríkisins, það er voða erfitt einhvern veginn að leggja þau af. Þetta litla einskiptismál er orðið að einu stærsta útgjaldamáli ríkissjóðs. Ég skal útskýra það rétt á eftir hvernig þetta mál, sem þó kostar bara 2 milljarða, er að mínu viti orðið eitt stærsta útgjaldamál ríkissjóðs.

Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram tilefni og nauðsyn þessarar lagasetningar:

„Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins segir m.a. að gripið verði til aðgerða til að lyfta greiðslum almannatrygginga til tekjulægri lífeyrisþega.“

Þetta er meginatriðið í þessu frumvarpi eða megintilgangurinn, að lyfta greiðslum almannatrygginga til tekjulægri lífeyrisþega. Sú breyting á lögum um almannatryggingar sem lögð er til í þessu frumvarpi á sem sagt að vera liður í þessum aðgerðum. Það segir líka að í frumvarpinu sé gert ráð fyrir breytingu frá því sem hefur verið undanfarin ár, og ég hef verið að lýsa hér, „hvað varðar markmið og útreikning á umræddri eingreiðslu þannig að greiðslan komi betur til móts við tekjulægstu hópa þeirra sem fá umrædda eingreiðslu“. Þetta segir í frumvarpinu, að þessi eingreiðsla sé þannig hugsuð að hún komi betur til móts við tekjulægstu hópana.

Svo fer maður að rýna í tölurnar og skv. 2. mgr. 1. gr. frumvarpsins fær lífeyrisþeginn fulla eingreiðslu ef allar aðrar tekjur en greiðslur samkvæmt almannatryggingum og félagslegri aðstoð eru ekki hærri en 1,2 milljónir á árinu 2025, á yfirstandandi ári, en fari tekjurnar umfram 1,2 millj. kr. þá lækkar eingreiðslan um 3,3% af tekjugrunni umfram frítekjumark þar til hún fellur niður. Það er því ekki einu sinni um það að ræða að menn hafi haft einhverja hugsun í því að reyna að takmarka fjölda þeirra sem fá þessa greiðslu, heldur mun þetta frumvarp leiða til þess að mjög margir fá mjög lága fjárhæð sem safnast samt saman upp í 2 milljarða sem verða teknir úr vösum skattgreiðenda. Ég veit ekki hvort hægt væri að hafa um þetta frumvarp slagorðið Allir græða heldur kannski miklu frekar Til hvers eru refirnir skornir?

Það var ágætt að Viðskiptablaðið, sem er ábyggilega lesið af stórum hópi fólks sem mun fá þessa greiðslu, birti ágæta umfjöllun um þetta frumvarp og fjallar um hvernig fylgiskjal Tryggingastofnunar, sem hv. velferðarnefnd barst nokkrum dögum eftir að málið var afgreitt út úr nefnd, lýsir því hvernig eingreiðslan skiptist yfir eignastöðu og tekjur styrkþeganna á árunum 2020–2024. Það var einmitt það sem við óskuðum eftir, nefndarmenn, að yrði upplýst um, hvernig þessum málum hefði verið háttað í þessi nokkur ár sem þessi eingreiðsla hefur verið við lýði. Þar kemur fram að árið 2024 fengu alls 28.504 einstaklingar greiðslu, þar á meðal er hópur efnamikilla og tekjuhárra lífeyrisþega. Það kemur fram í skjalinu og í umfjöllun Viðskiptablaðsins að sé horft til eigna kemur í ljós að 844 einstaklingar sem áttu meira en 100 millj. kr. í hreinum eignum fengu eingreiðslu í fyrra. Og þrátt fyrir frítekjumark í nýju lögunum er ekki að finna neitt þak á eignir, þannig að það liggur alveg fyrir að eignamiklir einstaklingar með tekjur í kringum 1 milljón á mánuði geta fengið fulla eingreiðslu. Af þeim sem fengu greitt í fyrra voru 771 með eigið fé á bilinu 100–200 milljónir, 62 á bilinu 200–400 milljónir og 11 einstaklingar með á milli 400 milljónir og 1,2 milljarða kr. í hreinum eignum. Samkvæmt tölum Tryggingastofnunar fengu 1.152 einstaklingar með heildartekjur í desember 2024, að meðtöldum greiðslum frá TR, yfir 1 milljón kr. í slíka eingreiðslu. Þar af voru 1.005 með 1–2 millj. kr. í tekjur, 69 með 2–3 milljónir, 32 með 3–4 millj. kr., 16 með 4–5 milljónir og 30 manns með 5–25 millj. kr. í mánaðartekjur. Þessar tölur byggja á raunútgreiðslum 2024 segir í Viðskiptablaðinu um samantektarblað Tryggingastofnunar.

Hér hefur verið rætt um það, menn velta því fyrir sér og benda á það að menn geti átt miklar eignir en verið með lágar tekjur. Það er reyndar ekki endilega um það að ræða hér. Menn geta verið með háar tekjur en samt fengið þessa eingreiðslu. En það er alveg rétt að menn geta verið með miklar eignir án þess að hafa miklar tekjur. Menn borða ekki húsin sín og allt það er slagorð eða það sem menn henda oft á lofti í þessari umræðu og það er alveg rétt. En það er illa hægt að halda því fram að eignamikið fólk, sem hefur yfir 100 millj. kr. í eigur, geti talist á meðal þeirra verst stöddu a.m.k. Við komumst auðvitað ekkert áfram í ríkisfjármálunum ef við ætlum að líta á stóreignafólk sem eitthvert viðfang almannatryggingakerfisins almennt. Það er auðvitað ekki hægt að fara þannig með skattfé. Hafi menn sannarlega áhuga á því að ríða það öryggisnet sem við svo sannarlega viljum hafa undir fólki, okkar minnstu bræðrum, ef við viljum hafa það þannig að það grípi þá, þá er ekki hægt að líta svona á málin.

Þetta frumvarp er þannig, þróunin hefur orðið sú að fjöldi þeirra sem mun fá greiðslur hefur aldrei verið meiri. Í fyrra þegar aldraðir komu fyrst inn í þetta, eins og ég nefndi hér í upphafi, voru það um 2.000 aldraðir einstaklingar. Nú er gert ráð fyrir greiðslu til um 18.000 aldraðra og það er vel að merkja gert ráð fyrir að eingreiðslan fari til fleiri aldraðra en öryrkja. Ég minni á að þetta mál var upphaflega ætlað öryrkjum, ætlað þeim verst stöddu á meðal okkar sem mögulega eru ungir öryrkjar. En nú er svo komið að þessi ríkisstjórn, með Flokk fólksins í fararbroddi, ætlar að eyða stærstum hluta af 2 milljarða kr. fjárframlagi úr vösum skattgreiðenda til aldraðra sem eru bara alls konar hópar og margir eignamiklir. Öryrkjar geta auðvitað líka verið það en ef að líkum lætur þá eru kannski aldraðir frekar í þeim hópi. Þetta finnst mér, virðulegur forseti, ekki bara vera ómálefnalegt heldur líka svolítið sorglegt hvernig menn leyfa sér að gera tillögu um meðferð með þessum hætti á almannafé.

Það er vel að merkja áhugavert að lesa umsagnir um þetta mál, m.a. frá ASÍ sem einmitt nefnir að það sé þannig núna að 73 þúsund lífeyrisþegar hafi fengið lífeyri frá Tryggingastofnun á þessu ári. Þetta frumvarp gerir ráð fyrir því að 37 þúsund manns fái eingreiðslu og að um 17 þúsund fái fulla eingreiðslu. Þetta frumvarp er að mati ASÍ ekki til þess fallið að lyfta greiðslum almannatrygginga til tekjulægri lífeyrisþega og ég tek heils hugar undir það. Þetta er vond ráðstöfun á almannafé og kostar 2 milljarða kr.

Á sama tíma, til að setja þetta í eitthvert samhengi, þá liggur fyrir hér þessa dagana á þinginu tillaga ríkisstjórnarflokkanna um að fella niður heimild hjóna og sambúðarfólks til að nýta ónýttan persónuafslátt á milli skattþrepa. Þetta hefur verið kallað í stuttu máli samsköttun hjóna, þ.e. heimild þeirra sem eru samskattaðir til þess að nýta ónýttan persónuafslátt. Þetta úrræði held ég að velflestir Íslendingar hafi notað á einhverjum tímapunkti á sinni starfsævi. Það koma upp aðstæður hjá langflestum, að ég hygg, þar sem þetta úrræði hefur verið nýtt frá því að fjölþrepa skattkerfi var tekið upp. Þetta gagnast sérstaklega ungu fólki, foreldrum með langveik börn, ungum foreldrum og jafnvel þeim sem eru að klára starfsævina en lenda kannski í slysi þar sem annar makinn þarf að hverfa tímabundið af vinnumarkaði. Þetta úrræði er sannarlega til þess fallið að renna stoðum undir og styrkja þá sem eru á vinnumarkaði, og þeir sem standa undir allri velferð á Íslandi eru þeir sem eru á vinnumarkaði. Það að fella þessa heimild niður hefur ríkisstjórnin reiknað að muni kosta ríkissjóð, eins og ríkissjóður kallar það ranglega, það kostar ekki ríkissjóð vegna þess að ríkissjóður á ekki sjálfkrafa rétt á sjálfsaflafé fólks, en þau meta að þetta sé aðgerð upp á 2,5 milljarða.

Ef við berum þetta saman, þegar það þarf að forgangsraða vegna þess að við sem erum hér þurfum að forgangsraða almannafé, hvort það sé eðlileg forgangsröðun að taka þessa 2,5 milljarða frá fólki sem getur ekki verið á vinnumarkaði til skamms tíma eða lengri tíma en er að reka fjölskyldu og færa til t.d. eldri borgara sem Tryggingastofnun hefur upplýst um að er jafnvel stóreignafólk, a.m.k. margt eignafólk, skuldlaust fólk sem langfæst er að biðja um þessa eingreiðslu. Langfæstir af þessum 37 þúsund einstaklingum eru að kalla eftir þessari eingreiðslu. Það eru einhverjir sem eru að gera það og bíða og vona heitt og innilega að þessi eingreiðsla komi innan tíðar en langflestir held ég að myndu telja að þessum peningum væri miklu betur varið til að renna styrkari stoðum undir þá sem minnst hafa og þurfa á því að halda og ekki síður ungt fólk og fjölskyldufólk sem stendur undir allri velferð hér á Íslandi, m.a. þessari eingreiðslu sem þetta frumvarp fjallar um.