breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Við ræðum hérna frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir næsta ár, 2026, sem við köllum oft bandorm, bandorm I, sem eru þá tekjuforsendur fjárlaga. Það er rétt að nefna hér í upphafi að þegar við erum að tala um fjárlög þá er það sambærilegt við fjárhagsáætlanir sem menn þekkja hjá sveitarfélögum, fyrirtækjum, jafnvel fjölskyldum sem horfa fram í tímann, sem áætla hvað þau ætla að gera á næsta ári og geta treyst sér til miðað við þær tekjur sem þau hafa. En fjárlögin eru meira, fjárlögin eru lög og eru þar af leiðandi öðruvísi en venjulegar fjárhagsáætlanir. Þær eru fjárheimildir. Það er í raun og veru ólöglegt að fara fram úr þeim fjárheimildum sem hér eru settar fram í fjárlögunum.
Ríkisstjórnin, í þeim aðstæðum sem hún stóð frammi fyrir þegar hún tók við, er búin að halda því fram í tvö ár að hér sé allt í skralli í fjármálum og efnahagsmálum. Í ljós hefur náttúrlega komið hið gagnstæða. Ég minni á að fjárlög síðasta árs voru samþykkt þar sem búist var við halla upp á í kringum 60 milljarða. Síðan hefur það komið í ljós, sem er oft ágætt í fjárhagsáætlunum, og jafnvel í fjárlögum — það er að fara varlega í tekjuáætlanir, vera ekki að búa sér til of miklar væntingar til þess að ramma síðan útgjöldin inn á það. Það getur þá orðið jákvæð niðurstaða ef menn halda sjó í útgjöldunum, þurfa ekki að koma inn með fjárauka eða ganga á varasjóði eða eitthvað slíkt og að tekjurnar komi þá heldur sterkar inn í lokin. Við höfum hins vegar búið við það núna undanfarin mörg ár í þessari fjárlagagerð að tekjuhliðin hefur verið vanáætluð verulega, ekki vegna þess að menn séu að fara varfærna leið heldur er einhver galli í kerfinu. Það gerðist líka á þessu ári, sem voru vonbrigði fyrir mig sem fyrrverandi fjármálaráðherra, þar sem ég gekk mjög hart eftir því við mína embættismenn að fara yfir það margoft hvort sá tími væri liðinn þar sem við fengjum 100–120 milljarða í auknar tekjur án þess að hafa gert okkur grein fyrir því. Það er ekkert mál að þeir séu 10 eða 20. Það er eðlilegt. Það er bara skynsamleg varfærni en þegar stærðargráðan er orðin 100 milljarðar þá skekkir það alla umræðu í þingsal og þannig var það síðastliðin þrjú ár og jafnvel yfir allt árið. En það var nú það sem kom fyrir þessa ríkisstjórn, sem var jákvætt fyrir hana, að 80 milljarðar bættust við tekjuhlið þess árs. Í sumar stefndi þar af leiðandi í að þessi 60 milljarða halli á fjárlögum ársins 2025 yrði 19 milljarðar. Núna er kominn fram fjárauki yfir þetta ár þar sem mér sýnist að niðurstaðan verði einhvers staðar á bilinu 35–38 milljarðar og auðvitað á það eftir að koma í ljós því þetta er líka einhvers konar áætlun um tekjur. Við vitum t.d. núna að það er gríðarleg aukning í innflutningi á bílum þannig að tekjur munu vaxa til ríkisins á síðustu tveimur mánuðum þessa árs um umtalsvert meira en menn höfðu gert ráð fyrir. Að sama skapi munu þær tekjur auðvitað ekki koma á næsta ári. Menn kaupa ekki bíla aftur sem þeir keyptu í nóvember og desember en ég kem betur inn á það á eftir.
En stóra myndin er þessi: Þrátt fyrir 80 milljarða auknar tekjur þá kom hér fjárlagafrumvarp fram í haust þar sem aukningin á milli ára var 125 milljarðar. Meiri hlutanum í fjárlaganefnd fannst það ekki nóg og bætti við 18 þannig að aukningin á milli ára er 143 milljarðar. Af hverju er ég að fara yfir þetta þegar við erum að fjalla hérna um frumvarp um tekjur? Jú, það er vegna þess að ég varð dálítið undrandi að fylgjast með umræðunni í gær af hálfu meiri hlutans, ekki svo mikið í ræðum þeirra heldur meira í andsvörunum þar sem þau komu hér ítrekað upp og spurðu fulltrúa minni hlutans, ef þeir væru á móti þessari tekjuáætlun eða þessum aðferðum við að auka tekjur ríkissjóðs, hvaða aðrar leiðir væru færar. Það er eins og meiri hlutanum hafi verið fyrirmunað að átta sig á því að besta leiðin til að ná jafnvægi í ríkisfjármálunum er að auka ekki svona mikið útgjöldin og fara síðan bara allar mögulegar leiðir, eins og við sjáum í þessu frumvarpi, bandorminum, og í nefndaráliti meiri hlutans, bara fara hér um eins og stormsveipur og reyna að finna alls staðar hvar séu einhvers staðar tekjumöguleikar, hvar séu músarholur sem hægt er að sækja í einhverja aura, einhverjar tekjur. Þetta er heilt yfir og auðvitað hefur þetta áhrif á venjulegt fólk sem er auðvitað andstætt því sem í það minnsta tveir stjórnarflokkar, Viðreisn sérstaklega og Samfylkingin að einhverju leyti, héldu fram fyrir kosningar, að það yrðu ekki lagðar fram skattahækkanir á venjulegt fólk. Þetta plagg hérna, frú forseti og allir þeir sem á mig hlýða, er uppfullt af skattahækkunum á venjulegt fólk. Það er gert til þess að fjármagna 143 milljarða aukningu á fjárlögum á milli ára, 9% aukningu á milli ára.
Nú er það svo, og ég hef fullan skilning á því og tek alveg undir með þeim sem hér hafa talað af hálfu meiri hlutans og fjármálaráðherra á hverjum tíma, að það er mikið ákall að fjármagna alls konar hluti. Það er hægt að rökstyðja það með góðum hætti að það sé skynsamlegt og það sé nauðsynlegt fyrir samfélagið að auka þjónustu á tilteknum atriðum. Ég hef í raun og veru áhyggjur af því að þrátt fyrir þessa 143 milljarða aukningu á fjárlögum meiri hlutans séu ákveðnir hlutir þar vanfjármagnaðir og fór yfir það í umræðunni um fjárlögin, þannig að þegar við komum að þessum parti þar sem hér er leitað logandi ljósi, og það er kallað að loka skattaglufum og það er talað um að taka til í regluverkinu til að einfalda hlutina en allar þær breytingar lúta að því að hækka innheimtu gjalda og skatta á venjulegt fólk, þær snúa allar að því, þá hefði að mínu mati verið skynsamlegra af hálfu meiri hlutans að halda aðeins aftur af sér í útgjöldunum.
Í fjárlögunum stóð til að vera með 15 milljarða halla og ná hallalausum fjárlögum árið 2027. Það er svona hluti af umræðumöntrunni sem meiri hlutinn er með að þau þurfi að gera þetta, þau þurfi að hækka skatta á allt og alla vegna þess að þau ætli að ná hallalausum fjárlögum 2027. Það er til önnur leið. Það hefði verið hægt að hafa hemil á sér í útgjöldunum. Það hefði ekki þurft að fara og leita logandi ljósi að öllum mögulegum glufum, eins og ríkisstjórnin segir, að loka glufum, og að einfalda skattkerfið sem hefur þær afleiðingar að hækka gjöld og skatta á venjulegt fólk. Það hefði verið hægt. En nú er ríkisstjórnin ekki að því og hún verður að standa og bera ábyrgð á því.
Við getum bent á hvað betur mætti fara. Við getum lagt fram breytingartillögur og vonast til að meiri hlutinn hlusti á þær. Ég er ekki vongóður um það, frú forseti, vegna þess að stöðugleikareglan, sem meiri hlutinn kom með hér inn í sumar, gerir það að verkum að hér mega útgjöld ekki vaxa umfram ákveðna prósentu öðruvísi en að tekjur fylgi með. Þegar hún var kynnt til sögunnar var sagt að stöðugleikareglan myndi hjálpa til að búa til góðar væntingar um að ná niður verðbólgu og þar með vöxtum og það þyrfti ekkert endilega að klára, það þyrfti ekki að fullnýta stöðugleikaregluna, hún væri svona aðhald.
En hver er staðan? Meiri hlutinn kynnti fjárlög þar sem munurinn var einhverjar 400–500 millj. kr., afgangurinn af möguleikunum eða það sem hægt væri að auka innan þess ramma. Síðan hafa orðið umtalsverðar breytingar og við höfum reyndar haldið því fram að það sé búið að brjóta stöðugleikaregluna og það verður áhugavert að fá frekari upplýsingar um það þegar líður á árið, eftir áramót. Það er erfitt að fá þær upplýsingar núna. Meiri hlutinn heldur því fram að hún standist en eftir standi 28 milljónir af 1.600 milljarða útgjöldum. Eru það skilaboðin sem markaðurinn tekur til sín um að meiri hlutinn sé að fara varfærnislega, á sama tíma og varasjóðurinn er kominn niður í lágmark? Það er búið að lækka hann um marga milljarða frá því í fjárlögunum sem er leiðin til að vera, eigum við að segja bara, undir ýmislegt búin, sem getur gerst og við höfum séð á síðustu árum að hefur orðið sífellt algengara að það komi upp jafnvel stórir viðburðir sem við þurfum að takast á við. Þá eru þessi fjárlög og þessi tekjubandormur ekki að fara að styðja við það, hreint ekki.
Fulltrúi Framsóknar í efnahags- og viðskiptanefnd, hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson, fór mjög vel yfir áherslur okkar í sínu máli hér í gær. Ég ætla að fara yfir nokkrar þeirra. Eitt af því sem kom fram í fjárlögunum og er hér staðfest í þessum bandormi er verðlagsuppfærsla krónutöluskatta. Ég átti hér samtal bæði við hæstv. forsætisráðherra og fjármálaráðherra í haust þegar þetta kom fram og benti á að hafi ríkisstjórnin raunverulega trú á því að hún nái hallalausum fjárlögum 2027 og að verðbólgan fari niður í aðdraganda þess til þess að hjálpa til við að ná hallalausum fjárlögum og verðbólgan fari niður og vextir niður til hagsbóta fyrir öll heimili og fyrirtæki í landinu, þá hefði verið skynsamlegt, hafi ríkisstjórnin trú á því, að hækka krónutölurnar um 2,5% og senda þar með þau skilaboð og fordæmi til sveitarfélaganna, til fyrirtækjanna, þeirra sem ákveða verð, að hér hafi ríkisstjórnin fulla trú á því að hér sé að nást niðurstaða í að verðbólgan fari niður í markmið innan skynsamlegs tíma. Nei, ríkisstjórnin hækkar hér krónutölurnar um 3,7% og sendir þar af leiðandi út þær væntingar til markaðarins að ríkisstjórnin hafi ekki trú á því að hún nái verðbólgunni niður á næsta ári, sem þýðir að það geta allir gert slíkt hið sama og við höfum reyndar séð í haust eftir að fjárlögin komu fram að væntingarnar hafa lítið lækkað þrátt fyrir að hagkerfið sé að kólna mjög hratt og þrátt fyrir að hæstaréttardómur á fasteignalán hafi haft umtalsverð áhrif sem varð til þess að Seðlabankinn lækkaði þó stýrivexti um 0,20%. En það var fyrst og fremst út af því. Það var ekki út af því að verðbólguvæntingar hefðu lækkað mjög mikið eða verðbólgan lækkað þannig að hér held ég að ríkisstjórnin hafi gert stórkostleg mistök en hún þurfti þessa 2 milljarða sem þarna koma inn, ef ég man rétt, 2,5 milljarða, sem er munurinn á 2,5 og 3,7%.
Meiri hlutinn — og ég held að við í minni hlutanum séum öll sammála því að hækka sóknargjöld. Það hefur verið, eigum við að segja plagsiður af hálfu fjármálaráðuneytisins, ég tek það alveg á mig líka, að vera alltaf að krukka í það. Það kallar hins vegar á endurskoðun á þessu máli. Við höfum gert þetta í mörg ár, að hækka hér tillögu ráðuneytisins, framkvæmdarvaldsins, í þinginu, að laga sóknargjöldin, en það kallar á að hér sé gert eitthvað jákvætt.
Ég ætla að nefna hérna aðeins innviðagjald á skemmtiferðaskip sem við hækkuðum um of á síðasta ári og kostaði einfaldlega of mikið, kom of seint og hafði áhrif. Það er jákvætt að verið sé að laga það en á sama hátt, með nákvæmlega sömu rökum, er hægt að gagnrýna harðlega þau áform þessarar ríkisstjórnar að breyta öllum þessum hlutum sem varða t.d. vörugjöldin, og aðrar þær breytingar sem tengjast þeim og eru reyndar líka í fjárlögunum, svona seint á árinu. Það er hálfur mánuður til áramóta þegar þetta tekur gildi og þetta eru gríðarlegar breytingar. Við í Framsókn höfum haldið því fram, og ég held með réttu og ég nefndi það hérna áðan, að tekjur þessa árs af vörugjöldum af innflutningi á bílum muni verða meiri en menn áætluðu vegna þess að það er gríðarleg sala á nýjum bílum núna í nóvember og desember eftir að menn áttuðu sig á því hvað væri að fara að gerast, því menn áttuðu sig ekki allir á þessu þegar fjárlögin voru kynnt og þetta var nefnt, af því að það var algjörlega skautað yfir það hvernig útfærslan ætti að vera.
Það er ekki fyrr en í þessu nefndaráliti, hálfum mánuði áður en þau taka gildi, sem útfærsla liggur fyrir. Hún er óskiljanleg og ég er sammála hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur í því. Ég er búinn að vera að hlusta á þessar umræður hér og ég er búinn að vera að lesa þessi skjöl og ég held að það sé illskiljanlegt fyrir marga hvað er að fara að gerast. Það eru auðvitað ekki góð vinnubrögð og hafi menn ekki getað lært af því sem ég nefndi hérna með innviðagjöldin á skemmtiferðaskipin í fyrra þá eru menn alla vega að gera hér jafnvel enn stærri mistök í þessu.
En hér er ríkisstjórnin að teikna upp tekjur. Hér er ríkisstjórnin að ætlast til að hér komi 7,5 milljarðar af vörugjöldum á næsta ári þrátt fyrir allar þær breytingar í sölu sem eru að verða hér á síðustu mánuðum þessa árs og þau áhrif sem verða. Þegar þú hækkar verð á einstökum bílum ekki bara um hálfa milljón heldur jafnvel heila eða tvær og það er ekki þessi mikla verðteygni þá bara fresta menn því að kaupa sér nýja bíla og bílaleigurnar eru þar undir. Það verða talsverð áhrif af kerfisbreytingunni í kílómetragjaldinu á þær. Það hefði verið nóg í sjálfu sér. En vörugjöldin hér eru umtalsverð breyting fyrir þær sem munu gera það að verkum, og er að gerast, að þær eru annars vegar að reyna að bregðast við núna áður en hækkunin verður á vörugjöldunum, og hins vegar munu þær væntanlega fresta kaupum á bílum á næsta ári einfaldlega af því að þær geta ekki fjárfest því að breytingin á kílómetragjaldinu mun kosta einhverja fjármuni af því að meiri hlutinn hefur ekki verið tilbúinn til að fresta gildistökunni á bílaleigurnar sem hefði verið skynsamleg leið, einfaldlega vegna þess að svigrúm þeirra í fjárlögum er farið vegna þess að þau settu alla peningana í útgjöldin í svo miklum mæli. Þess vegna ríghalda þau í þessar tekjur.
Hér var mikið tekist á um veiðigjöld í sumar. Þau áttu að skila 7,5 milljörðum. Ég hef ekki séð það en mér hefur skilist að fjármálaráðuneytið, eftir að veiðigjöld hafa verið reiknuð upp, sé að endurmeta tekjurnar vegna þeirra á næsta ári. Það sama ætti auðvitað að gilda um vörugjöldin þegar menn sjá að hér eru umtalsverðar breytingar að verða, þannig að hér fara menn með opin augu inn í næsta ár með það að tekjurnar muni ekki standa. Þessar tekjur munu ekki skila sér af vörugjöldum inn í fjárlögin. Þar með er náttúrlega stöðugleikareglan farin og þar með er líka farin út sú staða að ríkisstjórnin sé að ná betri tökum á ríkisfjármálunum og minnka þar með líkurnar verulega á því að hér verði hægt að vera með hallalaus fjárlög árið 2027. Það versta er að væntingarnar úti á markaðnum, sem ákvarða í raun vaxtastigið í landinu, eru þær að ríkisstjórnin trúi ekki sjálf á það sem hún segir um að hún sé með öllum sínum aðgerðum að lækka verðbólgu og vexti.
Það eru hérna nokkrir aðrir hlutir sem ég ætlaði aðeins að nefna. Til að mynda kallaði ríkisstjórnin og meiri hlutinn eftir einhverjum tillögum um hvernig væri hægt að loka fjárlagagatinu öðruvísi en með þessum leiðum. Meiri hlutinn hefur ákveðið, og reyndar kom það fram fyrst í fjárlögunum, í nefndarálitinu að bæta hér við, til að laga jafnræði gagnvart öðrum hreinorkubílum en rafmagnsbílum, að fella niður 5% vörugjöld af þeim bílum og telja það til skattalækkunar. En á sama tíma er sami meiri hluti og sama ríkisstjórn að lækka stuðninginn, styrkinn, sem er á pari við þau áhrif sem 5% lækkun á vörugjöldum hefur á venjulegan rafmagnsbíl en umtalsvert meiri á dýrari bílana. Það er líka sérkennilegt ef menn eru að leita eftir því að henda þessum tekjum frá sér.
Ég ætlaði að nefna hér aðeins akstursíþróttirnar þar sem meiri hlutinn er ekki að koma vel til stuðnings við íþróttir og það er líka rétt að nefna að í fjárlögunum voru 0 kr. settar til frekari íþrótta- og æskulýðsmála. (Forseti hringir.) Meiri hlutinn lagaði það hér aðeins. Það er jákvætt að hér sé verið að fella dráttarvélar og tæki til landbúnaðar undan vörugjöldum. (Forseti hringir.)
Að lokum, frú forseti, þar sem tími minn er búinn, er hér líka verið að hækka vörugjöld á leigubíla, sendibíla, minni vörubíla og fornbíla. (Forseti hringir.) Það er alls staðar verið að leita að einhverjum litlum músarholum til að standa undir þessari risaútgjaldaaukningu ríkisstjórnarinnar.
(Forseti (EÁs): Forseti biður hv. þingmenn að virða ræðutíma.)