157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[11:15]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að fullyrða um það hvort ekki sé hægt að finna einhver fordæmi um eitthvað sem menn geta síðan farið að rífast um hvort séu sambærileg eða ekki. En ég ætla alla vega að halda tvennu fram. Annars vegar hef ég haft svolitlar áhyggjur af því síðustu ár, verandi líka hluti af framkvæmdarvaldinu, að sjálfstæði þingsins hafi minnkað. Það sé verið að leita of mikið af hálfu þingsins til ráðuneytanna til að fá leiðbeiningar til þess að fara í gegnum hlutina. Oft er það vegna tímaleysis, menn eru einfaldlega með flókin mál og hafa ekki tíma til að setja sig ofan í þau. Þá myndi ég segja að það væri betra að við settum færri lög á þinginu og þingið væri sjálfstæðara í sínum störfum og væri ekki að leita svona mikið upp í ráðuneytin. Þetta er hins vegar auðvitað forkastanlegt, að ráðuneytið skuli ekki hafa komið fram miklu fyrr sjálft með þessar tillögur til þess að aðilar úti í samfélaginu gætu brugðist við með eðlilegum hætti og gagnrýnt og farið í gegnum til að hjálpa þingnefndinni að fara gaumgæfilega og réttilega í gegnum hlutina.

Ég man eftir því að þegar umræðan var í fjárlögunum um að hér ætti að hækka vörugjöld um 7,5 milljarða og það stóð ekki neitt um það, þá kölluðum við eftir því við hæstv. fjármálaráðherra. Hann sagði að það væri ekki til umræðu vegna þess að hann væri bara í fjárlögunum. Hann neitaði að gefa hér upplýsingar sem mér þótti sérkennilegt. Svo er þetta að koma á síðustu metrunum hér inn og hefði auðvitað þýtt það, ef það kemur svona ítarlegt minnisblað ofan úr ráðuneyti þar sem öll útfærslan liggur fyrir, að þurft hefði að senda málið aftur til umsagnar til þeirra aðila sem málið varðar til þess að þingnefndin gæti fjallað um það með eðlilegum hætti. Það er það sem ég var líka að segja hérna að þetta er að gerast á of þröngu tímabili. Eftir hálfan mánuð tekur þetta gildi og það skilur þetta enginn, held ég, nema þeir uppi í fjármálaráðuneyti, en þeir eru líka að sækja sér peninga til að reyna að stoppa upp í útgjaldaaukningu ríkisins, meiri hlutans.