breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og tek undir með honum. Svo athygli sé vakin á því þá er ekki eins og þetta hafi verið mjög mikið tímahrak því að minnisblaðið er skrifað 17. október og þegar minnisblað er skrifað með svona fylgiskjali þá getur þetta bara verið frumvarp. Við skulum muna það að þetta er ekki eini bandormurinn sem verið er að fjalla um hér í tengslum við þessi fjárlög. Það er bandormur II, eins og hann er kallaður, og skilur auðvitað enginn fyrir utan þennan sal hvað þetta þýðir. En það er annað frumvarp til umfjöllunar um breytingu á ýmsum lögum sem þetta hefði svo sannarlega getað farið inn í eða verið stakt þar sem ráðherra kemur bara og svarar því til hvernig hann er að leggja til að ná 7,5 milljörðum aukalega frá fólkinu þarna úti. En þessa umræðu hefur alveg skort og eins og hv. þingmaður kom inn á þá fannst hæstv. ráðherra það bara ekki vera til umræðu þegar verið var að ræða fjárlögin. Það verður að viðurkennast að þetta eru allsérstök vinnubrögð hér. Hér erum við búin að klára 2. umræðu fjárlaga, hér erum við að ræða bandorminn og þegar maður fer að lesa sig í gegnum þetta þá, virðulegur forseti, verð ég bara að efast stórkostlega um að þetta gangi upp með þessum hætti því eins og hv. þingmaður segir er rosalega erfitt að átta sig á því hvað er nákvæmlega undir. Og eins gott að yfirlesturinn sé í lagi því í nefndarálitinu er ekki verið að vísa í frumvarpið heldur breytingartillögur í minnisblaðinu, greinar þar. En þegar það á svo að fara að praktísera þetta þarna úti má búast við því að einhverjir verði ósáttir og viti ekki nákvæmlega hvernig þeir eiga að gera þetta, einmitt eftir nokkra daga.