breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Dauðastríðið er hafið, það eru þung orð. Ég er hér að vitna til ummæla eins af útgerðarmönnum landsins, Óðins Gestssonar, framkvæmdastjóra Íslandssögu ehf., en hann ritar grein í vestfirska fjölmiðilinn BB í gær um áhrif veiðigjalda og byggðatengdra aðgerða sem ríkisstjórnin hefur kynnt. Dauðastríðið er hafið, hvorki meira né minna. Ég dreg þetta fram til þess að leggja áherslu á ástæðu þess að við stöndum hér í dag og þessa daga til að vara við þeim skattahækkunum sem verið er að boða og enduróma þær áhyggjur sem fyrirtækin, sveitarfélögin, einstaklingar og aðrir hafa af þeim áformum. Það var ekki hlustað í sumar. Það var ekki hlustað í sumar þegar veiðigjöldin voru til umræðu og við endurómuðum hér áhyggjur 26 sveitarfélaga í landinu, sem voru að reyna að koma á framfæri áhyggjum sínum af þessum breytingum á veiðigjaldi og þeim skattahækkunum sem í þeim fólust. Við vitum að þessi áform eru strax farin að hafa áhrif í sveitarfélögum. Nýsköpun er haldið í skefjum, uppsagnir hafa farið fram o.s.frv. Ekki er hægt að segja annað en að varað hafi verið við þessu og það dálítið lengi og mikið, m.a. úr þessum sal.
Ég vitna í þessa grein þessa útgerðarmanns sem fer fyrir einum af þessum svokölluðu litlu útgerðum, kannski meðalstóru útgerðum, í landinu og er að varpa fram áhyggjum sínum af þessum aðgerðum og er að lýsa því hvers konar vegg gagnrýnendur gengu á þegar reynt var að lýsa þeim áhrifum sem þessi skattahækkun myndi hafa. Það var sannkallaður veggur sem þar var komið að. Það var eins og að tala við dauðan hlut. Í umræddri grein útgerðarmannsins á Vestfjörðum segir líka, með leyfi forseta:
„Veiðigjöldin munu framkalla hægan dauðdaga, í okkar tilfelli myndi ég giska á að á árinu 2027 myndi fara að halla verulega undan okkur, þá munu veiðigjöldin hafa hækkað um 20%. Við munum lifa af árið 2026 að óbreyttu enda aðeins 85% af hækkuninni virk og verulegir afslættir í boði.“
En svo er það næsta ár og dauðastríðið er hafið. Þannig eru útgerðarmenn á þessum stað að lýsa þessum aðgerðum. Í lok greinar sinnar, þar sem viðkomandi útgerðarmaður hefur líka farið yfir þær byggðatengdu aðgerðir sem ég ætla ekki að fara út í hérna, segir hann, með leyfi virðulegs forseta: „Illa ígrundaðar byggðatengdar aðgerðir eru ávísun á hörmungar sem erfitt er að sjá fyrir hvernig geti endað.“
Ef fyrirtæki sem þetta neyðist til að loka innan tveggja til þriggja ára, hætta starfsemi, þá mun það hafa áhrif á venjulegt fólk. Það er venjulegt fólk sem stýrir þessum fyrirtækjum, það er venjulegt fólk sem starfar í þessum fyrirtækjum og það er venjulegt fólk sem lifir í þessum samfélögum þar sem útgerðin, lítil og meðalstór, ég tala nú ekki um stærri útgerðir, hefur svo óskaplega mikla þýðingu. Þetta voru aðvörunarorðin sem voru ávörpuð og endurómuðu í sumar og eru það sem málin ganga út á.
Ég vil nefna þetta hér því að í fjárlagafrumvarpinu og þessum bandormi til tekjuöflunar eru það einkum skattahækkanirnar sem við Sjálfstæðismenn höfum áhyggjur af og erum að reyna að vara við. Við erum að reyna að koma því á framfæri að þær munu hafa gríðarlega alvarlegar afleiðingar. Í sumar voru það útgerðirnar og samfélögin úti á landi sem voru til umfjöllunar og það var óvægin umræða sem við sem vorum að benda á þetta fengum í okkar hlut. Núna hefur ferðaþjónustan heldur betur komið sínum áhyggjum á framfæri, bílaleigurnar fyrst og svo ferðaþjónustan. Þar er talað fyrir daufum eyrum eftir því sem fram kemur í þeirra málflutningi og þeim viðbrögðum sem við horfum hér upp á. Við vitum að ferðaþjónustan er orðin stærsta einstaka útflutningsgrein landsins, hvorki meira né minna. Undanfarin ár hefur verið lítil fjölgun, það hefur bara verið jafnt og þétt streymi ferðamanna hingað til landsins og fyrirtæki og einstaklingar sem bjóða upp á þjónustu og alls kyns nýsköpun þeim til handa finna ákveðið jafnvægi og það hefur verið ákveðinn fyrirsjáanleiki í því. Núna eru þessi fyrirtæki og Samtök ferðaþjónustunnar mjög uggandi og telja að hér sé verið að vega mjög alvarlega að þessari mikilvægu útflutningsgrein.
Það er venjulegt fólk sem sinnir ferðaþjónustu hingað og þangað um landið. Það er venjulegt fólk sem stýrir fyrirtækjunum, það er venjulegt fólk sem er að þjónusta ferðamenn vítt og breitt um landið og af þessu höfum við áhyggjur, að það sé ekki hlustað á þessi varúðarorð og athugasemdir sem úr þessum ranni koma, ekki frekar en í sumar því að þá var spjótunum einkum beint að því að það væru þarna nokkrar stórar útgerðir og fjölskyldur sem gætu svo sannarlega lagt meira til og því þyrfti að fara í þessa aðgerð. En það er venjulegt fólk og venjuleg fyrirtæki, lítil og smá, sem eru byrjuð að finna fyrir því gjaldi og það er það sem er verið að vara við í athugasemdum, í þessu tilviki varðandi ferðaþjónustu, sem ég hef gríðarlegar áhyggjur af.
Ég hef gríðarlegar áhyggjur af því að það sé verið að fara í aðgerðir sem þessar sem munu fækka tækifærum til atvinnustarfsemi einyrkja, einstaklinga, lítilla fyrirtækja og stórra, alls staðar um landið. Þetta mun hafa mikil áhrif og við eigum ekki að fara í neitt af þessu tagi, eins og hér í þessu tilviki, án samtals, án áhrifamats. Þetta eru enn einar aðgerðirnar það sem af er þessu kjörtímabili þar sem hlutum er dembt af stað án þess að þeir séu kostnaðarmetnir eða tekið tillit til mögulegra áhrifa þeirra. Maður áttar sig á því að oft og tíðum er ekki hægt að fara í nákvæmt áhrifamat en það þarf einhvers konar samtal við þá sem koma fram með þessar athugasemdir.
Hvað ferðaþjónustuna varðar, eins og við vitum og hefur ítarlega verið komið á framfæri hérna, þá er það einkum kílómetragjaldið sem ferðaþjónustan hefur áhyggjur af. Í punktum sem komið hafa fram frá samtökum ferðaþjónustuaðila má nefna eftirfarandi: Kílómetragjaldið leggur samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu að veði. Kílómetragjaldið dregur úr verðmætasköpun Íslands. Kílómetragjaldið gengur þvert á tvö meginmarkmið ferðaþjónustunnar og stjórnvalda, eykur árstíðasveiflu innan ferðaþjónustunnar, dregur úr dreifingu ferðamanna um Ísland. Kílómetragjaldinu fylgir verulega íþyngjandi kostnaður fyrir bílaleigur og stjórnsýsluna alla. Kílómetragjaldið teflir afkomu bílaleiga í tvísýnu. Kílómetragjaldið dregur úr fjárfestingu bílaleiga og tækifærum þeirra til að skapa meiri verðmæti í framtíðinni. Svo mörg voru þau orð og það er, held ég, ekkert hægt að hafa það skýrara. Ég trúi því ekki enn þá að ekki verði tekið tillit til þessa. Samtök ferðaþjónustunnar hafa birt sínar tillögur og komið fram með mögulegar málamiðlunarleiðir, hvernig mögulega mætti gera breytingar á kerfinu en þá með einhverjum aðdraganda, með einhverri aðlögun, því að fyrirsjáanleikinn er svo mikilvægur í þessari atvinnugrein eins og öðrum.
Þessi aðgerð sem vegur svona þungt að þessari mikilvægu útflutningsgrein, sem svo margir eiga mikið undir um land allt — og eru að skapa öll þessi gríðarlegu verðmæti, 622 milljarða kr. á árinu 2024, í útflutningstekjur, það er hvorki meira né minna en þriðjungur af heildarútflutningi Íslands. Að vera að vega að þessu sem byggst hefur upp með krafti og framtaki og dugnaði fólks um land er dapurlegt að horfast í augu við. Þetta er allt venjulegt fólk, kæra ríkisstjórn. Þetta er allt venjulegt fólk sem á þarna ýmislegt undir og við sem njótum öll þessara gríðarlega miklu útflutningstekna.
Ég trúi ekki öðru en að það verði gerðar breytingar þótt tíminn sé orðinn skammur. Það er hægt enn þá. Það er hægt að fresta ákveðnum aðgerðum þarna. Við skulum sjá hvert horfir í þeim efnum. En þetta er ástæðan fyrir því að við erum hér að benda á þetta. Við viljum ekki fá það framan í okkur eftir hálft ár, eins og frá þessum útgerðarmanni á Vestfjörðum, frá fyrirtækjum í ferðaþjónustu, að dauðastríðið sé hafið. Þetta eru ömurleg ummæli. Þetta er ömurleg staðreynd sem við erum að horfast í augu við. Þetta er grafalvarlegt í alla staði. Það er líka hrópandi að horfa upp á það að þingmenn þeirra flokka sem hafa boðað að það yrðu ekki skattahækkanir hafi ekki komið og tekið meiri þátt í þessari umræðu og útskýrt það fyrir öllum þeim sem stunda ferðaþjónustu um land allt hvers vegna ekki er tekið tillit til athugasemda þeirra. Eins og hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson kom inn á hér áðan, hann hefur gríðarlega mikla reynslu, fyrrverandi fjármálaráðherra og innviðaráðherra og hvað það er allt saman — hann viðurkenndi að það hefðu verið mistök að fara af stað með innviðagjald á skemmtiferðaskip í lok þings í fyrra og það væri kjörið tækifæri að læra af þeirri reynslu. Þingmenn þeirra flokka sem stóðu að þessu eru allir að horfast í augu við það að þetta voru mistök sem séu farin að hafa gríðarleg áhrif og áður en áhrifin verði enn meiri þá eigi að grípa til meiri aðgerða. Ég tel að lækkun á gjaldinu sé góðra gjalda verð en það hefði þurft að gera enn meira. En lærum af þeirri reynslu.
Hlustum á aðvörunarorð þeirra sem eru í þessari þjónustu núna; við erum að tala um stórar bílaleigur, sem byrjuðu að hafa áhyggjur og vörpuðu því fram hver áhrifin yrðu, og Samtök ferðaþjónustu sem eru gríðarlega öflug og eru í samtali og samskiptum og vinna fyrir öll þessi fyrirtæki sem eru vítt og breitt um landið og eru bara gríðarlega mikið landsbyggðarmál, halda uppi fjölskyldum og jafnvel samfélögum úti á landi. Það hafa myndast svo mikil tækifæri í þessari stórkostlegu atvinnugrein, vil ég segja. Það er stórkostlegt hvernig undanfarinn áratug, kannski rúman, ferðamenn hafa viljað streyma í milljónatali til landsins. Þetta eru bara tækifæri. Þetta eru tækifæri sem landsmenn hafa sem betur fer nýtt sér og gert frábærlega vel. Pössum upp á þetta, verum frekar hvetjandi en letjandi. Það er gríðarlega letjandi að finna fyrir auknum álögum og þurfa að standa skil á þeim; þú sérð ekki fram á að það sé kannski fýsilegt að halda áfram einhverri lítilli starfsemi eða annarri sem hefur gengið vel. Þessar aðgerðir allar kristalla það að það er enginn skilningur í röðum þeirra sem leggja þetta fram á því hvernig það er að reka fyrirtæki og hvernig verðmætin hreinlega verða til; hvernig það er að reka fyrirtæki og þurfa að eiga fyrir launum og sköttum um hver mánaðamót. Það er það sem málið gengur út á. Fólk þarf fyrirsjáanleika og aðgerðir af þessu tagi, sem munu hafa áhrif mjög fljótt, eru grafalvarlegar. Það er vont að þeir sem leggja slíkt fram hafi enga tilfinningu, ég er ekki að segja að allir þurfi að hafa reynslu af því að reka fyrirtæki, eða skilning á því hvers konar verkefni það er. Fólk vinnur langan vinnudag, vinnur um helgar og alveg eins og orka þess og tími leyfir, til þess að litla fyrirtækið, eða meðalstóra eða hvað það er, geti blómstrað. Svona aðgerð er ekkert nema letjandi fyrir allt þetta fólk út um allt land og þessi aðgerð er algjörlega skýrt dæmi um það að enginn skilningur er á á því hvernig það er að reka fyrirtæki. Það vantar algerlega þann skilning — og ég tala nú ekki um núna eftir þau áföll sem hafa dunið á í atvinnulífinu og við þekkjum öll, minni afli, fyrirtæki hafa lagt upp laupana, stórfyrirtæki, og mjög margir misst vinnuna; að gripið sé til aðgerða af þessu tagi í þannig ástandi, þegar hagkerfið er að kólna, þegar öll merki eru um kólnun.
Ég vil líka nefna varðandi kílómetragjaldið. Okkur hefur orðið tíðrætt um áhrif þungaskattsins í því frumvarpi, að það muni hafa mikil áhrif á verðlag þegar bifreiðar eru að keyra með vörur út um land allt og þessir skattar hækki á þungar bifreiðar. En ég vil líka nefna að það eru miklar áhyggjur í hópi þeirra sem eru í byggingarframkvæmdum. Það var ekki alveg það sem við þurftum að bæta í, að bæta í áhyggjur þeirra. Jarðefnaflutningar munu verða umtalsvert dýrari því að allt kemur þetta beint niður á verðlagningu þeirra sem keyra bílana á milli staða og standa í jarðefnaflutningum. Og hvar mun það koma niður? Það mun koma niður á kostnaði við framkvæmdir, hvort sem það er íbúðarhúsnæði eða hvaða framkvæmd sem er, innviðaframkvæmdir eða annað slíkt. Það er ekki þar sem byggingariðnaðurinn er að kalla eftir, það er nokkuð ljóst. Þetta er allt á sömu bókina lært. Þetta er gríðarlega vanhugsað og ég bind enn vonir við og ítreka það að þetta verði allt endurskoðað.