157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[11:42]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Karl Gauti Hjaltason) (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir hennar ágætu ræðu um þessar skattalagabreytingar sem er að finna í þessu frumvarpi sem eru margs konar og af mörgu að taka. Ég ætla að spyrja hv. þingmann um ákveðin atriði. Ég er með nefndarálit Sjálfstæðisflokksins hér, 2. minni hluta nefndarinnar, fyrir framan mig þar sem 2. minni hluti talar um heimild hjóna og sambúðarfólks til samnýtingar á skattþrepum. Ég hjó eftir því í gær, í máli hv. þingmanns meiri hlutans, að þarna væri verið að afnema raunverulega heimild til nýtingar á þessum skattþrepum og þarna væri um að ræða, og væru til tölur um það, efnamesta fólkið, eignamesta fólkið og tekjuhæsta fólkið. Ég hef aðeins gagnrýnt þetta og langar að spyrja hv. þingmann hvert hennar álit á þessari samsköttun er. Er í raun um að ræða efnamesta fólkið? Hefur hv. þingmaður einhverjar tölur í því sambandi, til að styðja mál sitt, um það í hvaða skattþrepum og hvaða tekjur um ræðir? Ég myndi vilja fá álit hv. þingmanns á þessum skattbreytingum.