breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir spurninguna. Ég kom þessu atriði bara ekki að í ræðu minni að þessu sinni því mér er svo umhugað um þessa stærstu útflutningsgrein okkar, ferðaþjónustuna, en hef gert það við annað tilefni. Þetta er náttúrlega eitt af mikilvægustu málunum sem við erum að benda á að komi niður á mjög mörgu fólki. Ég held að það séu um 15 þúsund manns sem falla þarna undir. Þetta er venjulegt fólk. Þetta er fólk sem saman er að nýta sér þessa leið í skattkerfinu til að bæta fjárhag heimilisins og er að haga sínum málum inni á heimilunum og í atvinnu eins og því hentar og líkar hverju sinni og við eigum bara að láta þetta í friði. Þetta hefur gefist vel og þessi orð sem hér hafa verið látin falla um að þetta sé bara allra ríkasta fólkið, ég gjörsamlega blæs á það og þau orð sem hafa líka verið látin falla að þetta séu aðallega fjölskyldur í Garðabæ. Það væri nú gaman að vera viðstödd ef þessir þingmenn hittu nú bara fólk sem býr í Garðabæ og hlusta á hvernig þeir ætla að rökstyðja það að þar búi allt ríkasta fólkið og þetta henti bara eða aðallega fólki úr Garðabæ. Þessi umræða er því á einhverjum skrýtnum stað og þetta er svo sannarlega eitt af þeim atriðum, mjög mikilvægu atriðum, sem Sjálfstæðisflokkurinn er að leggja áherslu á og hefur lagt fram tillögu um í minnihlutaáliti fjárlaganefndar, að þetta fái að halda sér áfram og er bara mjög mikilvægt fyrir fjölskyldur, alls konar fjölskyldur, venjulegar fjölskyldur.