breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgott svar. Það er þannig varðandi þessa samsköttun hjóna og nýtingu afsláttar hvort annars að þetta kemur ekki fram fyrr en við álagningu. Þau hjón sem hafa verið að nýta sér þetta verða í raun og veru ekki vör við þetta fjárhagslega fyrr en við álagningu næsta árs. Þá fá margir og hafa fengið endurgreiðslu sem nemur þessu og kemur mörgum oft á óvart. Þetta virkar þannig. Ef þetta eru 15 þúsund manns þá er það mikill fjöldi fólks sem mun verða vart við þessa skattahækkun á miðju næsta ári þegar þessarar endurgreiðslu, sem þessir skattþegar hafa stundum fengið, mun ekki gæta í endurgreiðslu skattsins heldur frekar að þau muni þurfa að borga meira, þannig að svona hefur fólk orðið vart við þetta. Auðvitað veit ég, hv. þingmaður, að það er fullt af fólki sem er kannski að vinna myrkranna á milli og makinn er heima eða veikur eða að sinna börnum, öldruðum foreldrum o.s.frv. og þá eru tekjurnar minni hjá öðru hjóna. Þá er mjög eðlilegt að sameiginlegar tekjur þeirra komi til skatts og njóti fulls afsláttar skattþrepanna. Ég er því sammála hv. þingmanni að þarna er verið að vega að fjölskyldueiningunni sem er raunverulega grunnstoð samfélagsins.
Í seinna svari myndi ég kannski vilja spyrja um kílómetragjaldið, um mælana á kílómetragjaldinu. Nú hafa sumir hv. þingmenn talað um mælana í bifreiðunum, að þeir séu ekki löggiltir. Hver er skoðun hv. þingmanns á því? Er hægt að treysta þeim mælum sem eru í bifreiðum og eru ekki löggiltir?