breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka andsvarið. Þetta er mjög tæknilegt mál og ég verð bara að viðurkenna að ég hef ekki sett mig í þaula inn í mælana og hvernig þeir virka, því miður. Það verður næsta skref. Maður hefur verið uppteknari af þessari grundvallarafstöðu til álagningar og íþyngjandi aðgerða í skattkerfinu. Það er verið að taka af þessa samsköttun hjóna, eins og þingmönnum hefur orðið tíðrætt um hér undanfarna klukkutíma eða síðasta sólarhring og lengur. Það er verið að taka það frelsi af fólki að það fái að ákveða sjálft hvernig það hagar þessum málum ef það þarf t.d. að sjá um einhvern eða stendur í barneignum eða ef annað er í námi og þar fram eftir götunum. Það er verið að taka þetta frelsi af fólki og það er ekkert annað en hrein og tær vinstri mennska. Þessi ríkisstjórn sýnir það náttúrlega betur með hverri vikunni sem líður að þetta er ekkert annað en hrein og tær vinstri stjórn. Það skýrir það kannski, eins og ég kom inn á í ræðu minni áðan, hvers vegna þingmenn Viðreisnar hafa t.d. lítið komið hingað upp til að taka þátt í umræðunni og rökstyðja þetta. Í aðdraganda kosninga var það sá flokkur, og reyndar Samfylkingin líka, sem lagði áherslu á að venjulegt fólk og fyrirtæki yrðu ekki skattlögð. Það er því mjög æpandi að þeir þingmenn sem stóðu í stafni í kosningabaráttunni og boðuðu þetta, boðuðu þessa stefnu, hafa ekki getað rökstutt eða viljað taka mikinn þátt í þeirri umræðu þótt auðvitað séu einhverjar undantekningar þar á. Látum fólk í friði og leyfum því að velja sjálft hvernig það nýtir sér, eins og í þessu tilviki, samsköttun komi það því til góða í einhvern ákveðinn tíma. Látum það í friði og leyfum því að velja.