157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[12:37]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Það er mikilvægt að ræða þetta frumvarp sem af ástæðu hefur verið kallað skattormur, ekki bandormur, vegna þess að það er lýsandi fyrir það sem við horfum upp á núna hjá nýrri ríkisstjórn þegar kemur að ríkisfjármálunum. Því miður er það þannig, virðulegi forseti, að hæstv. ríkisstjórn hefur ákveðið að vinna með þeim hætti að það er svona almenna reglan að það eru umbúðir en ekki innihald og það er fljótfærni en ekki undirbúningur. Bara svo dæmi sé tekið, vegna þess að hér hafa ýmsir hlutir verið gagnrýndir sem koma illa niður á almenningi og fyrirtækjum, er verið að fara í kerfisbreytingar sem eru illa ígrundaðar og munu skaða samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu. Hæstv. fjármálaráðherra er duglegur við að hitta alls konar fólk en hefur ekki viljað hitta fólk í ferðaþjónustunni til að setjast yfir þessi mál með þeim eða þá hæstv. ráðherrar, forsætisráðherra eða aðrir. Einhver kynni að segja, virðulegur forseti: Bíddu, er þetta ekki bara í fínu lagi? Þau eru bara með þetta. Þetta er allt svo vel undirbúið hjá þeim. Nei. Til að setja þetta í eitthvert samhengi þá muna kannski einhverjir eftir því að við vorum hér lengi í sumar að ræða mál sem stjórnarandstaðan hafði miklar áhyggjur af. Stjórnarandstaðan hafði miklar áhyggjur af því. Taldi málið vera háar skattahækkanir á skömmum tíma án undirbúnings, án samráðs og mörgum spurningum ósvarað. Við getum alveg sagt að það var ekki vinsælt að kalla fram og velta upp þessum spurningum. Allt í góðu. Hæstv. ríkisstjórn fór fram með þetta og ætlaði að ná 7,5 milljörðum í auknar tekjur af veiðigjöldum. Þann 12. desember, virðulegi forseti, fengum við í fjárlaganefnd bréf frá fjármálaráðuneytinu, 12. desember mun vera í gær. Þar kemur fram að lækkunin á veiðigjaldi miðað við frumvarpið, og munum að þetta átti að skila 7,5 milljarði aukalega, er 6,7 milljarðar. Þau ætluðu að ná 7,5 en ná, miðað við þær breytingar sem koma fram núna og verða væntanlega afgreiddar af meiri hlutanum í fjárlaganefnd, 800 millj. kr., ekki 7,5 milljörðum heldur um 10% af því. Þetta er það sem er að gerast núna. Þetta eru nýjar fréttir. Þær hafa ekki komið fram áður. Þetta eru upplýsingar sem við fengum í gær.

Látum vera að þau svíki kosningaloforð um krónutöluhækkanir og hækkanir á almenning og allt slíkt, að hækkanir á venjulegt fólk ættu ekki að vera til staðar. Þau horfðu beint í augun á kjósendum og sögðu: Við munum ekki hækka skatta — og bættu við: á venjulegt fólk. En venjulegt fólk mun finna fyrir samsköttuninni og auðvitað vörugjöldunum og kílómetragjaldinu. Látum það liggja á milli hluta. Nú hafa forsvarsmenn í þessu tilviki ferðaþjónustunnar, það var sjávarútvegurinn í sumar sem varaði við breytingunum sem þau keyrðu í gegn þá. Nú er ferðaþjónustan að gera nákvæmlega það sama og segja: Heyrðu, þið verðið að hugsa þetta betur. Þið verðið að gefa ykkur betri tíma í þetta. Þetta mun ekki skila tilætluðum árangri. Þetta mun skila minni peningum í kassann, þetta mun hafa neikvæð áhrif á okkur sem erum í samkeppni við erlenda ferðaþjónustu. Þetta mun gera það að verkum að ferðaþjónusta sem er fjarri flugvellinum sem flestir koma til, þ.e. Keflavíkurflugvelli, mun bera skertan hlut frá borði því þegar það verður dýrara að keyra langt á bílaleigubílum mun fólk keyra styttra. Af hverju segjum við þetta? Af því að við höfum reynt þetta. Við vorum með þannig fyrirkomulag, þegar við vorum að rukka ferðamanninn, að við miðuðum við lengd ferða. Við það urðu ferðirnar miklu styttri þannig að við breyttum því aftur af því að við viljum gjarnan að fólk sjái landið og að þeir staðir á landinu sem eru enn með fæstu ferðamennina fái að njóta þess að ferðamaðurinn komi þangað til að efla byggðir fjarri flugvellinum. Það er ekki hlustað á neitt. Það er ekki hlustað á neitt af hálfu hæstv. ríkisstjórnar, sem að sönnu er skattastjórn, alveg eins og það var ekki hlustað á neitt síðasta sumar, ekki neitt.

Núna liggur það fyrir að þau fá ekki fjármunina sem þau ætluðu og eru grunnurinn að þessum fjárlögum. Núna er því , virðulegi forseti, í dauðans ofboði verið að finna og kynna fyrir okkur einhverjar matarholur á harðahlaupum. Það gengur ekki vel hjá hæstv. ríkisstjórn og þessar breytingartillögur eru í samræmi við það. Og áhugavert að þetta gengur svo illa að til þess að halda sig við stöðugleikaregluna, auðvitað ekki að loka gatinu því það er mikill halli á fjárlögum, þá setja þau tölu á blað undir heitinu bætt skatteftirlit, þar sem þau ætla að ná 1,1 milljarði meira á næsta ári. Þau eru t.d. að hækka skatttekjur af lögaðilum núna milli umræðna um 200 milljónir sem skatteftirlitið á að skila þeim. Og virðisaukaskatturinn. Þau ætla að ná 630 milljónum meira af því að þau ætla að laga skatteftirlitið. Þetta er eitthvað sem við höfum séð áður hjá ríkisstjórnum sem í örvæntingu sinni eru að reyna að loka einhverjum götum eða sýna fram á að einhver af þeim markmiðum sem þær settu sér séu að nást. Nú eru fáir þingdagar eftir og ég er áhyggjufullur yfir því að þessi fjárlög, eins og þau liggja fyrir núna, þar með talið með þessum skattormi, verði samþykkt af meiri hlutanum. Það er augljóst af umfjöllun nefndarinnar. Það er augljóst af umræðum hér í þingsal. Það er augljóst af því sem hefur komið fram hjá ábyrgum hagsmunaaðilum eins og ferðaþjónustunni að hér erum við að gera breytingar sem munu kosta atvinnugreinina mikið og flækja regluverk gríðarlega. Bara til að setja þetta í samhengi þá mun flæking þessa regluverks kalla á kostnað hjá atvinnugreininni upp á 1,6 milljarða á ári og það verða afleiðingar af þessu sem eru ekki góðar. Ef þú ert að flækja regluverk, ef þú ert að ganga þannig fram að verðlag sem nú þegar er hátt, af því að við erum dýrt land, hækki enn frekar er nær algjörlega öruggt, nema eitthvað stórkostlegt annað sem við sjáum ekki fyrir komi til, að við munum minnka okkar samkeppnishæfni. Það þýðir bara á íslensku að ferðamaðurinn mun fara annað. Ekkert allir, það er ekkert svoleiðis, en fólk úti um allan heim, alveg eins og við hér heima, lítur á heimilisbókhaldið. Menn skoða hvað er í boði, bera saman verð og gæði. Við munum svo sem aldrei keppa í verðum. Við reynum að keppa í gæðum en það breytir því ekki að við erum ekki ein á vettvangi og það eru aðrar þjóðir sem eiga líka falleg lönd sem keppa við okkur á veturna, sumrin, vorin og haustin.

Virðulegur forseti. Stjórnarliðar eru löngu búnir að gefast upp á því að reyna að taka þessa umræðu. Þau voru ekki mikið í því að færa rök fyrir þessu en eru algjörlega hætt því. Sá þáttur, virðulegur forseti, er skiljanlegur, að þau séu búin að gefast upp á því. Það er nú held ég það eina sem er skiljanlegt í þessu.