157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[13:18]
Horfa

Lóa Jóhannsdóttir (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka Jóni Pétri fyrir frábæra ræðu. Mig langar aðeins að velta upp þeirri spurningu hvort eða hvernig þú sérð fyrir þér að það muni síðan koma eitthvað aukalega í ríkiskassann varðandi vörugjöld og kílómetragjald frá bílaleigunum eða hvort þú sjáir fyrir þér að það verði í raun bara það mikil fækkun í ferðamönnum til landsins að þetta jafnvel bara núllist út.

(Forseti (IngÞ): Forseti minnir hv. þingmenn á að beina tali sínu að forseta í stað þess að ávarpa þingmenn beint.)