breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Lóu Jóhannsdóttur fyrir gott andsvar. Hv. þingmaður spyr hvort kílómetragjald og vörugjöld á bílaleigur komi til með að minnka eða stækka skattspor ferðamanna hér á landi. Ég held að allir sem fylgjast með þessari umræðu geri sér grein fyrir því að ef bílaleigur hækka verð sín — það er bara þannig að ef þú ferð út í búð og það er búið að hækka verðið á einhverju þá er ólíklegra að þú kaupir þá vöru. Við erum í harðri samkeppni við önnur lönd um norðurslóðaferðamennsku og ég held að það sé algerlega ljóst að ferðamönnum mun fækka og því er þessi spurning hv. þingmanns mjög góð og kemur að ákveðnu leyti að kjarna málsins. En það er ekki bara það að skatturinn sem slíkur, kílómetragjald og vörugjöld sem eiga að skila nokkrum milljörðum í kassann hér — reyndar ekkert rosalega mörgum miðað við skaðann sem þetta mun valda. En milljarðarnir verða að öllum líkindum töluvert færri en þeir sem annars hefðu komið inn. Í raun verður lokaniðurstaðan, munurinn á skattspori fyrir aðgerð og skattspori eftir aðgerð, þannig að heildarskattspor til ríkisins minnkar. Því miður. Og þetta er ekki eina frumvarpið sem er á þeirri vegferð að minnka heildarskattspor ferðamanna eða fyrirtækja í landinu. Það virðist allt vera á sömu bókina lært hjá þessari hæstv. ríkisstjórn, þ.e. að reyna að skattleggja sig út úr vandanum.
Herra forseti. Ég veit að tíminn er búinn en ég kem kannski frekari svörum að í næsta andsvari.