breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Lóu Jóhannsdóttur fyrir aðra góða spurningu og hún svaraði spurningu sinni eiginlega sjálf. Þegar það verður samdráttur upp á nærri hundrað prósent í þessari grein þá er það algerlega augljóst að þetta mun ekki skila sér inn í hafnirnar eða til þeirra samfélaga sem þessi stóru farþegaskip komu til. Það er augljóst mál að þarna fóru menn algeru offari í skattlagningu, skoðuðu söguna og sáu að það hafði gengið vel, skipin höfðu komið inn, og þá ráðast menn að því. Þetta er dæmi um þennan vinstri hugsunarhátt. Ef eitthvað gengur vel þá skal krumla ríkisins koma inn og sækja eitthvað þar. Við sjáum það glöggt þarna. Hv. þingmaður talar um 90–95% fækkun, sú tala er ekki alveg á hreinu en þetta er ógnarhá tala. Það þarf enga grunnskólastærðfræði til að átta sig á því að þetta verður hreint tap fyrir ríkið og hvað þá þau sveitarfélög sem verða af þessum tekjum sem þau gerðu vissulega ráð fyrir í sínu bókhaldi.