breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgott erindi. Mig langar aðeins, í ljósi þess að ég vék stuttlega að því í gær í ræðu að framhaldsumsögn SVÞ og Bílgreinasambandsins, sem varðar reikniaðferð við útblástur — þar voru þingmenn að velta því fyrir sér, og ég tók undir það, hvort mögulega væri verið að brjóta þarna reglur og hugsanlega vega að stjórnarskrá. Nú sýnist mér vera komið svar frá þinginu um að slík málsmeðferð sé líklega innan leyfilegrar þinglegrar meðferðar. En það þýðir ekki að hún sé til fyrirmyndar. Það er ekki sami hluturinn að túlka megi lög þannig að það sé mögulega hægt að koma hlutum í gegn og að vinnulag sé til fyrirmyndar. Mig langar í þessu sambandi að minna aftur á — af því að ég leitaði ásjár forseta hér í gær og þess vegna eru þessi viðbrögð komin. En það breytir þó ekki þeirri staðreynd, hv. þm. Jón Pétur Zimsen, að ESB sendi þau tilmæli varðandi nákvæmlega þetta mál til EFTA-landanna að nota alls ekki þessa reikniaðferð til skattheimtu. Það liggur fyrir. Þó að þingið hafi nú komist að þeirri niðurstöðu að málsmeðferðin standist einhverjar reglur þá er augljóslega verið að fara gegn tilmælunum. Nú erum við einmitt með í stjórn hér, hv. þingmaður, þá flokka sem hafa mesta ESB-blætið af allri flokksflórunni í landinu. Maður skyldi því ætla að það væri draumur þeirra að nýta allt þetta ofvaxna og ýturvaxna regluverk sem Evrópusambandið býður upp á því að það er jú draumurinn að vera þar undir. En af hverju ekki þetta?