157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[13:26]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir prýðisgott andsvar. Hér biður hv. þingmaður mig um að setja mig inn í hugarheim vinstri manna. Það er að mínu mati mjög ósanngjarnt en ég skal reyna að gera það. Fyrst langar mig að nefna það að vinnubrögð rétt standist einhver mörk og komist í gegnum einhvern ramma þrátt fyrir að vera kannski ekki alveg nógu góð. Þetta er hugsun sem ég hef ítrekað orðið var við í skólastarfi. Stundum er spurt: Hvað þarf ég að fá háa einkunn til að ná? Það er sama hugarfar og það er ekki hugarfar þess sem er framúrskarandi eða þess sem við Íslendingar almennt viljum miða okkur við. Það er ekki það hugarfar. Við viljum gera hlutina vel þannig að sómi sé að og þannig að verk okkar komi til með að standa til lengri tíma og eitthvað sem er gert vel er miklu líklegra til þess að standa en eitthvað sem rétt sleppur yfir einhver mörk. Þarna er því strax komið upp rautt flagg. Og líka til að viðurkenna ákveðna hluti sem ég — kannski ekki ég en ég var samt í þeim flokki sem kom þessu kílómetragjaldi að ákveðnu leyti á dagskrá. Þegar lengra er liðið frá þá áttar maður sig á því að þetta er ekki góð leið og það er ákveðinn þroski að sýna að menn læri af reynslunni. En ég held að þetta sé ákveðin leti ríkisstjórnarinnar, að nenna ekki eða hafa ekki getu til að koma upp með almennilega leið og almennilega lausn. Þá stökkva menn bara í það sem er til einhvers staðar ofan í skúffu og skella því fram einn, tveir og þrír. Ég veit ekki hvort þetta eru alveg réttu svörin en mér finnst reyndar sérstakt að þeir hlýði ekki yfirboðurum sínum í Evrópusambandinu, sérstaklega Viðreisn og Samfylkingin.