breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Herra forseti. Ég bið hv. þingmann afsökunar á því að hafa ekki svarað spurningunni í fyrra andsvari. Ég er greinilega ekki nógu skarpur til að átta mig á hver spurningin var og er engu nær núna. En ég skal reyna að svara því hjá hv. þingmanni sem hann víkur að í sínu seinna andsvari. Það eru þessar skattahækkanir sem eru nú örugglega yfir 30 milljarðar. Það er sama talan og fer í loftslagsmálin hjá okkur. Ég held að staðan sé sú að við Íslendingar séum að átta okkur á því að þessi loftslagsmál í heiminum og staða þeirra eru á einhverjum allt öðrum stað en við Íslendingar erum að tala um. Við þurfum að opna augu okkar fyrir því, herra forseti, að Bandaríkin og Kína, sem eru stærstu efnahags- og herveldi heims, eru á einhverri allt annarri leið en allir aðrir. Það er hjómið eitt að vera að tala um að þjóð sem er með sjálfbæra orkustefnu, húshitun og annað slíkt, með fallvötnin okkar — að við séum að moka milljörðum á milljarða ofan inn í einhverja hít sem skilar líklegast engu.