157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[13:31]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mig langar til að fjalla sérstaklega um það sem tengist atvinnulífinu, tengist ferðaþjónustunni, og spyrja þingmanninn út í fleira. Hér er ég að tala um hækkun vörugjalda á ökutæki. Við sjáum hver áhrifin eru á tekjuhliðinni á þessu ári, tekjur færast yfir á þetta ár. Gera má ráð fyrir að þær lækki síðan á næsta ári í samhengi við hækkun gjaldanna sem getur þá haft áhrif á ferðaþjónustuna. En svo er spurning hvað gerist á árinu 2027, hver langtímaáhrifin verða. Á móti er verið að sleppa við vörugjöld af hreinorkubílum, rafbílum, en eins og skýrt hefur komið fram hjá ferðaþjónustunni þá telur ferðaþjónustan þetta vera mjög bratt, að þarna skorti, í samhengi við lög um opinber fjármál, fyrirsjáanleika; að breytingin gerist það hratt að menn nái ekki að aðlaga vilja þeirra sem leigja bíla og að innviði skorti fyrir slíka breytingu. Ég spyr því hv. þingmann: Getur hann verið sammála mér í því að það þurfi meiri fyrirsjáanleika í þessa breytingu og að það skipti máli að við séum með átak í fjárfestingum í innviðum til þess að hægt sé að ýta atvinnulífinu í slíka breytingu, sem hefur ýmis tækifæri í för með sér en er kannski of brött eins og horft er á málið í dag?