157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[13:33]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir afbragðsandsvar, hún hittir naglann algerlega á höfuðið. Það er ekki boðlegt fyrir eina af grunnrekstrareiningum Íslands, sem er ferðaþjónustan, að við séum að ræða þetta hér nokkrum dögum fyrir áramót og þetta taki gildi 1. janúar 2026. Það er ekki boðlegt að skella þessum skatti á núna, bæði vörugjöldunum og kílómetragjöldunum, þegar fyrirtækin sem sinna þessu, sérstaklega bílaleigurnar, fá engan tíma til að undirbúa sig. Við sjáum það reyndar með bílana almennt að hér mokuðust inn bílar fyrir áramótin. Menn keyptu reyndar líka fjórhjól og sexhjól, en síðan var það fellt niður þannig að menn eiga nú hjól þarna í tonnavís. En það er ekki boðlegt fyrir neinn rekstur, hvort sem það er fyrirtækjarekstur eða bara fjölskyldurekstur, að fyrirsjáanleikinn sé enginn. Þessi pólitíska óvissa sem þessi ríkisstjórn hefur skapað hér — það er pólitísk óvissa og við vitum aldrei hvar hún slær næst. Hver verður fyrir næsta höggi? Þegar það er orðið þannig þá verða menn almennt smeykir við fjárfestingar. Menn verða smeykir við að taka áhættu. Menn fara kannski af stað út í eitthvað, halda að eitthvað sé í gangi og svo er bara slegið á hendurnar á þeim og það er eitthvað annað komið í gang. Það sem hv. þm. Halla Hrund Logadóttir nefnir er skýrt dæmi um það að allan fyrirsjáanleika vantar. Það er ósvífið gagnvart ferðaþjónustunni að gera þetta svona. Hvert fyrirtækið á fætur öðru, ásamt Samtökum ferðaþjónustunnar, (Forseti hringir.) hefur mælt gegn þessu og beðið um tíma til að bregðast við með gjaldskrárhækkunum eða einhverju slíku sem síðan mun að sjálfsögðu bara minnka kökuna og fækka ferðamönnum, sem er ekki gott.