157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[13:36]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég get tekið undir það að fyrirsjáanleiki skiptir öllu máli fyrir rekstur og öllu máli fyrir ferðaþjónustuna, að það sé fyrirsjáanleiki. Það er mikilvægt að í breytingum í orkuskiptum séum við að horfa á fjárfestingar í innviðum og að við séum líka að kynna betur og markaðssetja það betur á erlendum vettvangi hvað felist í því að geta leigt sér grænna ökutæki. Það er svo margt sem þarf að koma saman í öllum breytingum og vinna má betur í þessu samhengi.

Mig langar í minni seinni spurningu að beina sjónum að landbúnaði en það er jákvætt að sjá að ekki er verið að horfa á vörugjöld á dráttarvélar. En mér sýnist að samt sem áður sé verið að horfa á það í samhengi við ákveðnar vinnuvélar, í samhengi við fjórhjól sem varða landbúnað sérstaklega. Ég vil spyrja hv. þingmann út í skoðun hans á því máli.