breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir seinna andsvar sitt. Ég held reyndar að það sé búið að fella út vörugjöldin á fjórhjól, sexhjól og önnur tæki og það er gott. Það var í meðförum þingsins sem það gerðist. En mig langar aðeins að víkja að því sem ég svaraði ekki í fyrra andsvari hv. þingmanns, þ.e. með orkuskiptin og að vera með rafmagnsbíla á bílaleigunum. Bílaleigurnar hafa nú þegar reynt þetta. Þær hafa keypt flotta rafmagnsbíla, Teslu og aðra bíla, til að leigja út til ferðamanna en ferðamenn vilja ekki leigja rafmagnsbíla í ókunnu landi þar sem innviðir eru ekki tilbúnir. Og þetta á líka við um okkur Íslendinga. Við leigjum ekki rafmagnsbíla til að keyra frá Osló til Þrándheims þrátt fyrir að Noregur sé eitt fremsta land í rafmagnsbílum og búið að byggja sína innviði. Hvers vegna ættu erlendir ferðamenn þá að leigja slíka bíla á Íslandi? Og við höfum bara reynslu af því; bílaleigurnar hafa þegar keypt tugi eða hundruð slíkra bíla en það leigir þá enginn. Þó að ríkisstjórn Íslands og bílaleigurnar vilji að erlendir ferðamenn geri það láta ferðamennirnir ekki stýra sér eins og kindum inn í rétt.