157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[13:38]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S):

Virðulegi forseti. Ég tek til máls í þessu máli, bandorminum svokallaða, af fullri ástæðu, því hér er víti til varnaðar. Við sem störfum hér á vettvangi stjórnmálanna og höfum fylgst með framgangi stjórnmálamannanna sjáum þá tilhneigingu, í það minnsta sumra stjórnmálamanna, eða sumra stjórnmálaflokka, að það er auðveldara að auka útgjöld. Það er auðveldara að setja á nýja skatta en að sýna ráðdeild í rekstri, skera niður í ríkisfjármálunum, einfaldlega treysta fólkinu í landinu, treysta einstaklingunum, treysta kraftinum sem felst í frjálsu atvinnulífi sem fær að þrífast án afskipta ríkisvaldsins. Þannig sköpum við gott samfélag. Þannig getum við staðið undir öflugu velferðarkerfi, akkúrat með þessum hætti en ekki að leggja slíkar álögur á atvinnulífið að það bogni eða brotni.

Þetta er ástæðan fyrir því að ég sé ástæðu til að gagnrýna þann bandorm sem hér er til umræðu til viðbótar við aðrar tillögur ríkisstjórnarinnar um skattahækkanir því að það er nefnilega erfitt að vinda ofan af vitleysunni. Það er erfitt að fella niður skatta sem hafa verið lagðir á, eða það hefur reynst sumum stjórnmálamönnum erfitt. Við sjáum að enn þann dag í dag erum við að glíma við skattahækkanir, álögur og flækjustig sem var innleitt í íslenskt skattkerfi í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Þrátt fyrir að 75 sinnum hafi ríkisstjórnin frá 2013–2024 lækkað skatta þá eru fingraför þess enn býsna víða. Hér skiptir öllu máli að vera meðvituð um það. Þrátt fyrir að okkur geti greint á um áherslur og sjónarmið, það er eðlilegt í pólitíkinni, þá eru léleg vinnubrögð aldrei afsakanleg. Öll verðum við að vanda okkur og ekki síst ríkisstjórnin eða hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra sem ætlar að leggja auknar álögur á almenning í landinu. Við verðum að vanda okkur og vinnubrögðin í þessu máli hafa verið slæleg og í andstöðu við stjórnskipan okkar, stjórnarskrána, sem krefst þess að frumvörp fari hér í gegnum þrjár umræður.

Ég er hér að vísa til þess að hækkanir á vörugjöldum voru ekki í frumvarpinu sjálfu. Stjórnarskráin segir það, þrjár umræður. Þingskapalögin gera ráð fyrir þessu sama en einhverra hluta vegna erum við hér með til umfjöllunar breytingartillögu fjármálaráðherra við eigið frumvarp sem hann mælti fyrir snemma í september. Þá erum við að tala um breytingartillögu ráðherrans sjálfs. Það er með eindæmum. Ég er nú nýgræðingur á þingi en er lærður í lögum og mér finnst það vera fyrir neðan virðingu þingsins að þegar máli hefur verið vísað héðan úr þingsal til umfjöllunar í nefnd þá fari ráðherrann þar, ekki einhvern veginn með hvísli heldur bara með minnisblaði og fyrirskipunum, að mæla fyrir um hvað nefndin eigi að gera og þá er ég að tala um þetta minnisblað frá 17. október sem geymir bara breytingartillögu ráðherrans sjálfs.

Slík vinnubrögð eru einfaldlega fyrir neðan allar hellur vegna þess að ef maður skoðar þetta minnisblað hæstv. ráðherra þá er þar breytingartillaga frá X, eins og það er orðað, hr. X, breytingartillaga um hækkun á þessum vörugjöldum frá X sem ku vera þá — þarna átti auðvitað atvinnuveganefndin að setja sjálfa sig inn. En þetta er sem sagt breytingartillagan sjálf, með greinargerð sem mætir með engum hætti þeim kröfum sem gerðar eru til lagasetningar. Í greinargerðinni er ekkert áhrifamat, engin merki um rýni lagaskrifstofu dómsmálaráðuneytisins, heldur er þessu laumað inn í formi minnisblaðs löngu eftir að umsagnarfrestur í málinu var runninn út. Það er ekki nema fyrir árvekni hagaðila og samtaka þeirra, sem óttuðust að þarna væri nú eitthvað skrýtið á seyði, sem málið kemst í hámæli. Það er ótrúlegt, virðulegi forseti, og sætir nokkurri furðu að þessi háttur sé hafður á þegar maður skoðar frumvarp fjármálaráðherra til fjárlaga sem var útbýtt hér 9. september og mælt fyrir því 11. september. Þar segir á bls. 121, með leyfi forseta:

„Endurskoðun á skattlagningu ökutækja og eldsneytis .......................................................... 7,5 [milljarðar].“

Þessar auknu álögur eða tekjurnar sem þær áttu að skila hafa verið inni í fjárlagafrumvarpinu eða virðast hafa verið inni í fjárlagafrumvarpinu sjálfu frá upphafi. En er það ekki býsna týpískt að ríkisstjórnin hugsi með sér að hún vilji fá 7,5 milljarða og fari svo að kanna hvernig hægt sé að sækja þá og hvort atvinnulífið beri það eða hreinlega sleppi því? Ef ég man rétt var fjármálaráðherra spurður út í þessi atriði hér í 1. umræðu málsins en svörin voru svo óljós. Ég skil einfaldlega ekki, fyrst þetta hefur legið fyrir frá upphafi, verið partur af hinu margumrædda plani, að leggja 7,5 milljarða vörugjöld á ökutæki, af hverju í ósköpunum það var ekki inni í bandorminum strax í upphafi? Eða þá, ef um mistök hefur verið að ræða hjá hæstv. ráðherra, gott og vel, að þá sé ekki bara lagt fram sérstakt stjórnarfrumvarp sem fær þá þinglega meðferð í samræmi við stjórnarskrána og þær kröfur sem við eigum að gera? Allt sætir þetta mikilli furðu.

Ég vil að lokum nefna þessa samþykkt ríkisstjórnarinnar um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa sem ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa vísað til í fyrirspurnum til okkar þingmanna. Þar er fjallað um þetta allt saman. Frumvörp og þingsályktunartillögur skulu undirbúin og frá þeim gengið í samræmi við samþykkt þessa. Svo er fjallað um íslenska lagahefð. Það er talað um að drög að frumvörpunum skuli kynnt í samráðsgátt, kynnt almenningi og hagsmunaaðilum. Ekkert af þessu var gert. Það á, í samræmi við 66. gr. laga um opinber fjármál, að leggja mat á áhrif frumvarpa, þar með talin fjárhagsleg áhrif. Ekkert af þessu var gert. Það á að afla umsagnar dómsmálaráðuneytisins. Dómsmálaráðuneytið á að rýna frumvarpið til að meta það út frá sjónarmiðum og kröfum sem við gerum til gæða lagasetningar. Ekkert af þessu var gert.

Og svo það þriðja, sem ég er nú svolítið hissa á, vegna þess að í 14. gr. samþykktanna er náttúrlega fjallað um afgreiðslu ríkisstjórnar og að þau eigi að taka til afgreiðslu á ríkisstjórnarfundi. Auðvitað var það heldur ekki gert, heldur erum við hér að fjalla um einhverjar afleiðingar af minnisblaði ráðuneytisins sem hefur slík áhrif á lagasetninguna hér á landi að við erum með þetta til umfjöllunar hér með þessum hætti. Það er miður og það er í andstöðu við þær kröfur sem við verðum að gera til vinnubragða hér á þinginu.