157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[13:49]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir prýðiserindi. Eins og kom fram í hans erindi er hann lærður í lögum og starfaði á því sviði og þess vegna er freistandi að gera eina tilraun enn með mál sem ég er búinn að ávarpa nokkrum sinnum. Ég gerði það í gær, til að mynda með því að leita ásjár forseta varðandi hvernig innheimt er samkvæmt kolefnisútreikningi. Það kemur fram í framhaldsumsögn SVÞ og Bílgreinasambandsins algerlega skýrt að ESB sendi tilmæli til allra EFTA-landanna varðandi það að ekki mætti nýta þessa skráningu til skattlagningar því hún hefði allt annan tilgang.

Nú er hins vegar komið svar, — ég er reyndar ekki búinn að sjá það, mér var bara sagt frá því hérna rétt áðan — að þingið væri búið að skoða þetta og að þetta stæðist alveg þinglega meðferð að leggja það til að reikna þetta út með þessum hætti sem í sinni einföldustu mynd er þannig að þú átt þrjá frændur og þeir kaupa allir nákvæmlega eins bíl með nokkurra mánaða millibili og lenda í mismunandi útreikningi á því hvað þeir eiga að greiða. Þess vegna leggur ESB EFTA-ríkjunum það til að nýta þessa aðferð alls ekki til skattheimtu. Eins og ég byrjaði á er hv. þingmaður lærður í lögum. Þó að það sé hægt að halda því fram að Alþingi hafi að sjálfsögðu heimild sem fullvalda ríki til að gera það sem það vill, til að mynda er ekki hægt að banna okkur að skattleggja bara hurðahúna alveg sérstaklega. En ég velti fyrir mér lögfræðilegu hliðinni á þessu, ekki síst í því ljósi að við erum núna með ríkisstjórn sem þráir fátt heitar en að undirgangast alla þessa lagabálka sem hún vill svo ekki fara eftir þegar henni hentar. Ég næ ekki alveg utan um þessa vegferð. (Forseti hringir.) — Herra forseti, ég biðst afsökunar. Ég hefði einmitt haldið að þessi ríkisstjórn vildi í einu og öllu hlýða því regluverki sem hún er alltaf að dásama.