157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[13:51]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og verð nú að játa það strax í upphafi að þetta er eitt af þessum atriðum sem ég á eftir að kynna mér betur. Í grunninn er það auðvitað þannig að í stjórnarskránni leiða skýrar kröfur um efni skattlagningar og við, löggjafinn, erum auðvitað bundin af þeim reglum sem og jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Þá er auðvitað lykilatriði að það er bannað að mismuna fólki í sömu aðstæðum. Það geta verið málefnalegar ástæður fyrir því að fólk í ólíkum aðstæðum lúti ólíkum reglum, það getur vel verið að það sé í lagi. En dæmið sem hv. þingmaður vísaði hér til, að sama bifreið af sömu árgerð sem er flutt inn á mismunandi árum sæti ólíkri álagningu, það auðvitað slær mann illa. Okkur er kannski tíðrætt um lögin og lögfræðina hér en svo er líka eitthvað sem heitir bara heilbrigð skynsemi. Hverjum dettur þetta í hug? Og þetta er auðvitað eitt af þessum atriðum sem þarf að rýna betur og þess vegna var ég að nefna rýni og gæði lagasetningar, vönduð vinnubrögð og annað slíkt. Það er ótrúlega sérstakt að atriði eins og þessi séu að koma upp hér svo skömmu fyrir þinglok. Það sætir nokkurri furðu og á því ber auðvitað ríkisstjórnin alla ábyrgð því að málið, þetta frumvarp, hefði átt að vera inni í upphaflega stjórnarfrumvarpinu strax í upphafi.