157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[13:53]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Þetta er hárrétt hjá hv. þingmanni þó að hann hafi ekki getað svarað spurningunni frekar en nokkur annar sem ég hef spurt, enda held ég að svarið liggi bara alls ekkert fyrir. Það þarf að kafa dýpra í þetta. En það er hins vegar hárrétt að auðvitað á að beita, þegar svona mál koma upp, einhvers konar útgáfu af almennri skynsemi. Það sér það hver maður, jafnvel þó að þingið, Alþingi Íslendinga, hafi leyfi til að gera allt mögulegt. Að ætla að skattleggja þrjá eins bíla skráða með nokkurra mánaða millibili með ólíkum hætti stenst auðvitað engar skynsemiskröfur.

Annað sem mér þykir líka furðulegt í þessu máli er að þegar það koma svona athugasemdir — og ég vek athygli á því að hv. þingmaður er ekki fyrsti lögfræðingurinn sem ég spyr, ég er búinn að spyrja fleiri hérna, þar á meðal hv. þm. Vilhjálm Árnason og fleiri, ég hef líka verið að hringja og reyna að fá einhvern botn í þetta. Hvers vegna á að keyra í gegn reiknireglu sem ESB hreinlega krafði EFTA-ríki um að ekki mætti nýta þessa aðferð til að reikna út til að nýta til skattlagningar? Samt sem áður þótt enginn virðist geta svarað þessu, ekki koma í það minnsta ráðherrarnir til að reyna að svara þessu, svo mikið er víst, þá á samt að halda áfram að keyra á þetta. Það þykir mér, ég ætla að leyfa mér að nota orðið vítavert. Mér þykir það vítavert. Ég veit ekki hvað hv. þingmanni þykir um það en mér hefði fundist rétt og kannski er það bara spurningin mín til hans: (Forseti hringir.) Virðist ekki rétt að stoppa hér við? Augljóslega þarf að skoða þetta betur áður en við höldum áfram eftir þessum vegi.