breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og gagnlegar og áhugaverðar umræður. Stóra málið að mínu viti, eins og ég nefndi hér í fyrri ræðu minni, er að auðvitað getur okkur greint á um áherslur í stjórnmálum, þótt það nú væri, sum okkar eru hægri sinnuð eða önnur vinstri sinnuð og sum hver á miðju stjórnmálanna eins og það er kallað, en öll verðum við að vanda okkur og vera skýr í allri markmiðasetningu. Aðferðirnar sem við viljum beita til að ná markmiðunum sem að er stefnt þurfum við að leggja fyrir. Við þurfum að vanda vinnubrögðin og svo hefur svo sannarlega ekki verið gert í þessu máli frekar en svo mörgum öðrum.
Þá fer maður að spyrja sig: Hvað er hér á seyði? Ég hreinlega velti því fyrir mér hafandi starfað á einkamarkaði í atvinnulífinu þar sem fólk kemst ekkert upp með bull og vitleysu. Það sætir nokkurri furðu minni þegar maður kemur hér inni í þingsal og það er bara engan veginn hægt að halda hverju sem er fram. Grundvöllur þessara fjárlaga og aðgerða ríkisstjórnarinnar er, eins og ég hef kallað það, eitthvert excel-skjal sem hangir í von og trú ríkisstjórnarinnar um að forsendur þess muni ekki breytast. En þær eru þegar fallnar úr gildi, eins og við höfum margbent á, enda hefur atvinnulífið þá þegar gripið til skaðaminnkunaraðgerða til að minnka áhrif þessara álagninga, flytja inn bíla strax, taka ákvarðanir strax, þannig að forsendurnar sjálfar eru fallnar úr gildi. Samt er haldið áfram eins og þessi gjöld eigi engu að síður að skila þeim upphæðum sem var lagt upp með, allt í þeirri von og trú að einhver tilbúin stöðugleikaregla ríkisstjórnarinnar haldi.
Þetta er einhvers konar gervimennska sem skilar engu og er ógagnleg allri umræðu. (Forseti hringir.) Það væri betra ef við gætum bara talað um tölurnar eins og þær eru, eins og hæstv. fjármálaráðherra heldur að þær séu í raun og veru, í stað þess að tala um eitthvað tilbúið leikrit til þess að einhver reikniformúla haldi. (Forseti hringir.) — Ég biðst afsökunar á þessu, herra forseti,