157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[13:58]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína yfirferð sem er um margt mjög áhugaverð. Hér hefur hann farið yfir gæði lagasetningar, farið yfir þætti eins og að hér hafi ekki farið fram áhrifamat, að hér hafi ekki fengist fullnægjandi umsagnir og það hafi skort að setja málið í samráðsgátt. Þetta eru verulegar athugasemdir ef maður horfir á gæði lagasetningar. Við erum að tala um stórt mál. Við erum að tala um hvernig fjárhagsleg umgjörð mun verða á næsta ári. Mig langar því að spyrja hv. þingmann: Hvað myndi hann leggja til að gert yrði til að bæta hér úr?