157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[13:59]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir frábæra fyrirspurn. Hún kemur inn á kjarna málsins að mínu viti. Þetta skiptir mjög miklu máli. Sjálfur hef ég flutt og unnið fyrir mína umbjóðendur dómsmál fyrir æðsta dómstól landsins, Hæstarétti Íslands, þar sem æðsti dómstóllinn fann að vinnubrögðunum hér og viðurkenndi réttindi míns umbjóðanda. Það varðaði reyndar félagafrelsi í það skiptið en fann að vinnubrögðum hér í þingsal og sagði: Löggjafinn getur ekki unnið svona. Hann getur ekki unnið svona í trássi við stjórnarskrána þannig að borgararnir verði af réttindum sínum. Ég þekki þetta því ágætlega og þess vegna er ég mjög gagnrýninn á þetta.

Það er algjört lágmark að ríkisstjórnin vandi sig og þá vísa ég enn og aftur í þessa samþykkt ríkisstjórnarinnar. Hún miðar auðvitað að því að tryggja þetta samráð, miðar að því að öll sjónarmið komi fram, miðar að því að ríkisstjórnin geti faglega áhrifametið eigið frumvarp, metið áhrif þess á almenning í landinu, fyrirtækin í landinu og annað slíkt. Ekkert af því hefur verið gert vegna þess að ríkisstjórnin er að stytta sér leið með ófyrirséðum afleiðingum. Þá verður staðan einmitt þessi, sem er svo skrýtin, að það er verið að taka ákvarðanir hér í þingsal sem eiga að koma til framkvæmda strax eftir áramót, hafa áhrif á rekstur þessara fyrirtækja. En varðandi fyrirspurn hv. þingmanns þá er svarið að mínu viti augljóst, það er að hætta við þessi áform og skera niður annars staðar í rekstri hins opinbera.