breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir skýr svör og mig langar einmitt í seinni spurningu aðeins að víkja að innihaldinu, að breytingum sem við fjölluðum um hér áðan varðandi vörugjöld og varðandi fyrirsjáanleika. Lög um opinber fjármál kveða á um mikilvægi þess að fara fram með varfærni, að ekki skuli taka ákvarðanir sem haft geti ófyrirséðar og neikvæðar afleiðingar. Þau fjalla líka um að það þurfi að vera ákveðin festa sem felist í því að forðast óvæntar eða fyrirvaralitlar breytingar sem geti haft ýmiss konar áhrif. Í ljósi þess að hv. þingmaður er lögfróður langar mig til að heyra álit hans á því hvort þessar skyndilegu breytingar sem taka gildi með litlum fyrirvara séu í góðu samræmi við lög um opinber fjármál.