157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[14:03]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Enn og aftur þakka ég hv. þingmanni fyrir prýðisgott andsvar og fyrirspurn. Svar mitt er einfalt: Nei, það gerir það ekki. Ég nefndi hér ákvæði stjórnarskrárinnar um þrjár umræður í þingi, ég nefndi þingskaparlögin. Hv. þingmaður nefnir lög um opinber fjármál og þessi vinnubrögð eru andstæð einstökum ákvæðum þar og þessari samþykkt ríkisstjórnarinnar. Heilt yfir er þetta í fullkomnu ósamræmi við anda þessara laga og fyrirmæla. Þá vil ég einmitt nefna það hér í þessum þingsal að ekki er um einhvern formalisma að ræða, þetta á að hafa efnisleg áhrif. Kröfur til lagasetningar um samráð og mat á áhrifum eiga ekki að vera einhver æfing um að tékka í tiltekin box heldur miða að því að frumvörpin sem hér eru samþykkt hafi tilætluð áhrif, að þau gangi ekki of nærri réttindum borgaranna eða getu þeirra til að greiða þá skatta og álögur sem ríkisstjórnin leggur á þá. Hér hefur ríkisstjórnin bara farið út af sporinu og það er miður.

Það sem er verra er að mér finnst það vera svona gegnumgangandi viðhorf af hálfu framkvæmdarvaldsins, þess sem nú er við völd, að bera ekki nægjanlega virðingu fyrir þinginu. Það sést í framkomu hæstv. barna- og menntamálaráðherra varðandi málefni framhaldsskólanna þar sem það virðist sem frumvörp sem er ekki einu sinni búið að kynna fyrir okkur þingmönnunum séu farin að hafa áhrif efnislega á meðferð framkvæmdarvaldsins þannig að það hefur áhrif á störf fólks og ráðningarsamband við ríkið.