breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Já, það er rétt, ég tek nú til máls öðru sinni í dag. Ég hóf þennan dag og mér var mikið niðri fyrir og mér er ekki minna niðri fyrir núna. Til að rifja það aðeins upp þá er ég að vísa í það að ég held að þessi afgreiðsla meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar á hlutum er varða vörugjaldið sé með því ófaglegasta sem sést hefur. Nú er nánast tómur þingsalur. Hér eru tveir þingmenn frá stjórnarandstöðu. Ég veit að hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir var að birtast í salnum, takk fyrir, og ég myndi gjarnan þiggja andsvar frá hv. þingmanni til að útskýra fyrir mér hvernig þeim datt í hug að afgreiða breytingartillögur við þennan svokallaða bandorm, eða ég ætla að leyfa mér að kalla það skattorm, út frá breytingartillögu sem þeim barst frá ráðuneytinu. Það er ekki hægt að lesa sig í gegnum nefndarálit meiri hlutans og skilja raunverulega hvað hér er átt við því að hér er verið að gera breytingartillögur við breytingartillögur sem birtast í umsögn frá fjármálaráðuneytinu.
Virðulegur forseti. Frá því ég hélt mína ræðu í morgun og var að býsnast yfir þessu hef ég haft samband við nokkra umsagnaraðila, þessa stóru umsagnaraðila, hagsmunaaðila, sem vinna við það að vakta vefi þingsins og Stjórnarráðsins og senda okkur umsóknir og enginn af þessum aðilum fékk upphringingu eða samtal um það að hér ætti að breyta vörugjöldunum. Þeir þurftu að hafa fólk í því að vakta vef þingsins, hvaða umsagnir væru komnar inn, til að vita að fjármálaráðuneytið væri að koma með minnisblað og breytingartillögur um það hvernig ætti að útfæra breytingar á vörugjöldum og aftur, munum það, það var ekkert um það í upphaflegu frumvarpi sem lá fyrir. Það er ekki breyting á þeim lagabálki í þessum bandormi.
Svo komst ég reyndar að því, vegna þess að hv. þm. Pawel Bartoszek hafði talað um það þegar þessi útfærsla hafði verið kynnt, og ég velti fyrir mér fyrir hverjum hún var kynnt og hvernig, að það kom frétt á vef Stjórnarráðsins 17. október: „Vörugjald af nýjum rafmagnsbílum fellt niður.“ Hér er fréttatilkynning frá fjármálaráðuneytinu sem er í rauninni upp úr þessu minnisblaði sem sent var til þingsins. Hér er í rauninni þessi ríkisstjórn og þessi ríkisstjórnarmeirihluti að meðhöndla einhvern veginn síðu Stjórnarráðsins sem einhvers konar löggjafa.
Virðulegur forseti. Svona til gamans fór ég að velta fyrir mér: Heyrðu, bíddu, hvaða vikudagur var nú 17. október? Það vill nú svo skemmtilega til að 17. október var föstudagur. Ég hafði nýverið rennt yfir ræðu sem flutt hafði verið hér í þinginu út af einhverju allt öðru þar sem sagt var eitthvað á þessa leið: Heiðarleg PR-mennska um það hvenær best er að fara út með ruslið, það er að birta fréttatilkynningu frá Stjórnarráðinu á föstudegi.
Virðulegur forseti. Það var hæstv. dómsmálaráðherra, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, sem notaði þessi orð hér á síðasta kjörtímabili um það að fréttatilkynningar sem birtast á vef Stjórnarráðsins á föstudegi séu heiðarleg PR-mennska um það hvenær best sé að fara út með ruslið.
Virðulegur forseti. Ég sannfærist enn meira, eftir því sem ég les mig í gegnum umsagnir og fer yfir þetta mál, um að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra þorði ekki að koma með þetta frumvarp inn í þingið, því frumvarpið var tilbúið. Það var bara sett fram sem einhver breytingartillaga. Hæstv. ráðherra hefði verið í lófa lagið að leggja það fram hér 17. október þó að það væri föstudagur, leggja það fram hér í þinginu, mæla fyrir því og setja það í eðlilega þinglega meðferð. Þá hefðu allir setið við sama borð, vitað hvað væri verið að leggja til, getað skrifað umsagnir um þetta mál og nefndin hefði getað fjallað um það út frá því. Nei, í staðinn fyrir það erum við hér að nálgast miðjan desember og við erum með óútskýranlegt og ólæsilegt nefndarálit meiri hluta um breytingar á vörugjöldum. Það er eiginlega algjörlega vonlaust að lesa sig í gegnum það og átta sig á því hvað nákvæmlega hæstv. ríkisstjórn ætlar að gera, og það eftir örfáa daga, þá á þetta að taka gildi.
Svo heyrði ég það hér áðan, í ræðu frá hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni, að hv. fjárlaganefnd hefði borist eitthvert minnisblað í gær eða einhver tilkynning þess efnis að þessar breytingar sem meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar er að gera á breytingartillögum fjármálaráðherra sem eru í minnisblaðinu muni svo á endanum þýða að þessir 7,5 milljarðar sem ríkisstjórnin ætlaði að taka úr vösum skattgreiðenda í gegnum vörugjöldin væru ekki lengur 7,5 milljarðar, væru bara einhverjar, ég man ekki hvað var sagt, 800 milljónir eða eitthvað. Ég hef ekki séð það, ég hef ekki séð það hér í umræðunni þannig að ég held að það sé mjög mikilvægt að hv. þingmenn stjórnarmeirihlutans komi hér upp og upplýsi okkur um það. En þá segi ég: Það er nú aldeilis fjör hér á þingi því að við vitum að þessi svokallaða stöðugleikaregla þessarar ríkisstjórnar hangir á algerum bláþræði, þannig að það verður þá áhugavert að vita hvernig á að loka gatinu. En ég efast ekki um að þau hafi hugmyndir um hvernig hægt væri að hækka skatta svo hægt sé að loka því gati, alveg klárlega.
En við erum hér að renna út á tíma. Við erum að renna út á tíma, virðulegur forseti, vegna þess að ríkisstjórnin, þessi verkstjórn svokallaða, er ekki að koma með málin tímanlega hér inn í þingið eða vel unnin. Þetta er bara birtingarmynd þess sem við höfum verið að horfa upp á frá því þessi ríkisstjórn tók við, birtingarmynd óvandaðra vinnubragða. Hér er greinilega öllum sama um hvað hagsmunaaðilum finnst, um hvað þingheimi finnst eða almenningi í landinu. Hér á bara að toga hlutina í gegnum þetta þing, algerlega óháð öllum reglum og venjum eða bara almennri kurteisi, eins og ég heyrði að fulltrúar samtaka aðila í ferðaþjónustu töluðu um að það þyrfti ákveðinn fyrirvara á því þegar hækkaðir væru skattar hér á fólk.
Virðulegur forseti. Ég vona að hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir sé að koma upp í andsvar við mig. Ég hef ekki enn fengið svar frá hæstv. ráðherra um af hverju hann kom bara ekki með þetta mál inn sem frumvarp en ég átta mig á því að það þýðir kannski ekkert fyrir mig að ranta hérna í pontu Alþingis. Það er kannski best að ég fari bara á samfélagsmiðla, taki upp svona færslu þar sem ég ranta og kannski býður þá hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra mér í kaffi til sín og útskýrir fyrir mér af hverju hann þorði ekki að leggja fram frumvarp um skattahækkun upp á 7,5 milljarða í gegnum vörugjöld. Það væri alla vega skemmtileg tilbreyting að geta fengið hér svör við þessum mjög svo eðlilegu spurningum sínum.
Virðulegur forseti. Aftur er ég að renna út á tíma og er enn að ranta um þetta því að þetta situr í mér. Mér finnst þetta forkastanleg vinnubrögð og ég kallaði eftir því í fyrri ræðu minni að forseti þingsins myndi meta það hvort þetta væri hreinlega tækt til afgreiðslu. Mér skilst á upplýsingum sem ég hef fengið að forseti líti svo á í ljósi þess að það sé töluvert svigrúm til að breyta hér bandormum. Ókei, hæstv. forseti metur það þá sem svo að hér sé hægt að fara í atkvæðagreiðslu um þetta mál en það breytir alla vega ekki þeirri staðreynd að hér eru vinnubrögðin fyrir neðan allar hellur og augljóslega til þess gerð að reyna að fela skattahækkanir. Við vitum jú að þessi ríkisstjórn er búin að finna alls konar nýyrði á skattahækkanir, hér hafa komið alls konar orð er tengjast því á endanum að taka meira fé af skattgreiðendum þessa lands. En hér finnst mér steininn taka úr þegar hæstv. ráðherra birtist ekki bara með útfærsluna á því hvernig hann ætli að ná í þessa 7,5 milljarða heldur laumar því í gegnum hv. efnahags- og viðskiptanefnd og laumar því meira að segja í gegn með því að senda frá sér minnisblað og frétt á vefsíðu Stjórnarráðsins eftir hádegi á föstudegi eins og sumir fulltrúar í þessari ríkisstjórn vilja meina að sé heiðarlegasta PR-mennskan um það hvenær best sé að fara út með ruslið.
Virðulegur forseti. Mér liggur ýmislegt meira á hjarta, samsköttunin, krónutöluhækkunin, það að sóknargjöldin eru ekki uppfærð í samræmi við það sem allir skattarnir eru og svo mætti lengi telja. Ég verð kannski bara að óska eftir því að fá að fara í aðra ræðu.