breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir áhugaverða ræðu. Ég skal viðurkenna það, herra forseti, að undir ræðunni skipti ég stöðugt um skoðun um hvers ég ætlaði að spyrja því í ræðunni var drepið á nokkrum málum sem eru með ólíkindum. Það var áhugavert að hv. þingmaður skyldi rifja upp þau ummæli sem núverandi hæstv. dómsmálaráðherra hafði um það hver tilgangurinn væri með því að birta eitthvað sem menn vilja helst ekkert þurfa að birta en lögum samkvæmt verða að gera það og þá sé náttúrlega best að gera það seinni part á föstudegi. Ef ég tók rétt eftir var þetta 17. október sem hv. þingmaður nefndi og jafnvel líka eftir hádegi þannig að það væri nú alveg öruggt að enginn væri að fara að lesa þetta, alla vega ekki fyrst í stað. Fyrir vikið hafi þurft að standa bara hreinlega ja, vakt um hæstv. fjármálaráðherra, hvað hann hygðist gera. Ég held reyndar að allir hafi vitað það. Vaktin var vegna þess að menn óttuðust að þeir væru búnir að lesa leikinn.
En spurningin til hv. þingmanns er kannski: Hvernig í veröldinni getur svona ofboðslega stór og mikil skattahækkun farið í svona farveg, eins og hv. þingmaður rakti í sinni ræðu? Þetta er eitthvað sem við hefðum átt að fá hér inn strax 17. október (Forseti hringir.) til umfjöllunar því þetta eru engar smáræðistölur sem verið er að henda á fólkið í landinu og atvinnulífið. Ég held að ég sé búinn að telja saman, herra forseti, (Forseti hringir.) þetta ásamt öllu því sem ég er búinn að finna og ég er alla vega kominn í 28 milljarða.