breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að fara í andsvar við mig og vera eini þingmaðurinn sem þorir hér að koma í andsvar og taka umræðuna um þetta mikilvæga mál. Hvernig getur þetta ratað inn í þingið með þessum hætti? Ég skil það ekki. Eini stimpillinn sem ég get sett á þetta er bara ófagleg vinnubrögð, leið til að reyna að koma einhverju hér inn í þingið án þess að það fari í þrjár umræður og eigi sér lýðræðislega umræðu; að fólkið í landinu og hagsmunaaðilar viti hvað er að gerast. Þannig virkar löggjafinn. Ég sé að hér er glott á hv. stjórnarþingmönnum sem finnst ég vera að tala út í loftið. En í alvöru talað, við erum á löggjafarsamkundunni okkar. Ég átta mig á því að í fjárlögum var talað um að það ætti að breyta vörugjöldum. Það vantaði 7,5 milljarða og það er nákvæmlega það sem ég fór yfir í ræðunni minni. Það er alveg augljóst að þessi ríkisstjórn kom sér ekki saman um það hvernig ætti að gera þetta. Þarna var bara skilið eftir gat og það átti að útfæra einhvern tíma seinna. Seinna er svo föstudagurinn 17. október, en þá hefði verið eðlilegast og heiðarlegast að koma hér með frumvarp inn í þingið þess efnis, því eins og ég segi þá er engin leið að lesa sig í gegnum það nákvæmlega hver niðurstaðan er í þessu máli núna.
Virðulegur forseti. Út af því að ég var ekki búin að geta þess áður þá tel ég einsýnt að þetta mál þurfi að fara inn í nefnd milli umræðna því að okkur eru farnar að berast umsagnir frá mikilsmetnum umsagnaraðilum eftir að nefndarálitið var afgreitt út þar sem fólk er að efast stórkostlega um það hvort þær leiðir sem farnar eru hjá meiri hluta nefndarinnar standist lög og gangi hreinlega upp út frá alls konar sjónarmiðum. Það er alveg ljóst að þetta þarf að fara aftur til umfjöllunar í nefndinni. Það er nákvæmlega svona sem gerist þegar fólk reynir hér að þröngva einhverju inn í þingið án þess að fylgja þingsköpum og fara með mál í þrjár umræður.