breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Já, ég er bara sammála hv. þingmanni. Mér finnst þetta ekki boðleg vinnubrögð. Mér finnst þau ekki boðleg okkur sem sitjum í stjórnarandstöðu en þau eru ekki boðleg þessari þjóð. Það er ekki boðlegt að fólk sem á hér verulegra hagsmuna að gæta geti ekki sent inn eðlilegar umsagnir um slík mál heldur þurfi að fylgjast með vef þingsins og senda inn umsagnir um breytingartillögu sem er í minnisblaði. Svoleiðis virkar bara þingið okkar ekki og á ekki að virka. Mér finnst þetta vera algjörlega forkastanleg vinnubrögð og alveg eins og hv. þingmaður kom inn á er þetta ekki það eina, því miður. Því miður höfum við séð meira af sambærilegum vinnubrögðum hér á síðustu misserum og það er miður. En stóra málið er auðvitað það að nú stöndum við hérna 14. desember og erum að ræða þessa hluti og núna eru að koma alls konar ábendingar um þessi mál. Þetta þarf að leysast fyrir áramót nema, sem er kannski bara eðlilegast — kannski er það það sem stjórnarliðar ræða hér á göngunum eða niðri í herbergjum því ekki eru þeir hér í þessum sal að taka þátt í umræðunni — að fresta þessu einfaldlega og gefa sér meiri tíma til að vanda sig betur.