157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[14:29]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Frú forseti. Það er kannski við hæfi að við tölum hér um bandorm vegna þess að þetta frumvarp teygir úr sér, vefur utan um sig alls kyns mál og sjaldnast með skynsamlegum hætti. Vandinn er að það vantar stefnu, það vantar forgangsröðun og það vantar virðingu fyrir skattfé landsmanna. Við höfum hér plan ríkisstjórnarinnar sem leggur til 143 milljarða kr. viðbótarútgjöld. Við höfum ríkisstjórn sem boðar tæplega 30 milljarða kr. skattahækkanir á næsta ári á heimilin og fyrirtækin í landinu. Það á að hækka skatta á ökutæki, það á að hækka skatta á eldsneyti, það á að afnema samsköttun hjóna, það á að leggja kílómetragjald á öll ökutæki, það á að hækka jöfnunargjald raforku, hækka krónutölugjöld um 3,7%, það á að hækka hér skatta á leigu, það á að hækka vörugjöld á bíla um 7,5 milljarða og þannig mætti lengi telja.

Spurningin, sem ég verð að spyrja í upphafi, er einföld: Hvað í þessu frumvarpi bætir líf fólksins í landinu? Hvað í þessu frumvarpi hjálpar fólki að standa betur með heimili sín, sín fyrirtæki, sín störf og sitt daglega líf? Ég verð að segja eins og er, frú forseti, að ég finn ekki svörin í þessu frumvarpi. Ekki þegar við lesum í gegnum 90 liði þar sem forgangsröðun virðist ekki vera nein. Við sjáum hvergi yfirsýn eða stefnu. Við sjáum ekkert sem ber vott um að markmið stjórnvalda sé að rétta af stöðuna sem heimili og fyrirtæki standa frammi fyrir. Það er grundvallaratriði í fjármálastjórn ríkisins að fjárlög, og ekki síður fjáraukalög, byggi á forgangsröðun; að það liggi fyrir hvað skiptir mestu máli, hvað styður við atvinnulíf, hvað styður við velferð og hvað styður við hagvöxt. Hér sjáum við enga slíka forgangsröðun. Við sjáum ekki varnarviðbrögð við því að íslenskt atvinnulíf glímir við stöðnun um þessar mundir. Við sjáum ekki viðurkenningu á því að hagvöxtur hafi minnkað. Við sjáum ekki aðgerðir til að styrkja lítil og meðalstór fyrirtæki, einyrkja eða sprotafyrirtæki. Við sjáum hins vegar alls kyns ráðstafanir sem virðast fremur vera afleiðing pólitískra hrossakaupa og skyndilausna.

Þegar við í Sjálfstæðisflokknum tölum um ábyrgð í opinberum fjármálum er það vegna þess að við gerum þá sjálfsögðu kröfu að framtíðin sé byggð á traustum grunni. Ef við höldum ekki utan um fjármál ríkisins núna þá mun það koma niður á öllum þegar fram líða stundir. Það sem veldur mér mestum áhyggjum við þetta frumvarp er hversu hratt stjórnarflokkarnir eru að slaka á aðhaldi. Hér er ekkert langtímaplan heldur virkar þetta á mann sem samkomulag til að friða ólíkar skoðanir innan ríkisstjórnarinnar; samkomulag til að sópa undir teppið hinum pólitísku vandamálum sem væri betur hægt að leysa með gagnsæi og umræðu. Þetta er ekki ábyrg fjármálastjórn.

Við sjáum í þessu frumvarpi aukin framlög til reksturs ríkisins, aukna fjármuni til ráðuneyta og stofnana, en hvar er umbótavinnan? Hvar er tiltektin? Hvar eru aðhaldsaðgerðirnar? Hvar er krafa um betri nýtingu þeirra fjármuna sem þegar eru veittir? Hvar er svo sem ein af þeim 10.000 hagræðingartillögum sem ríkisstjórnin fékk frá landsmönnum? Hér finnst ekki ein einasta. Við sjáum meira fjármagn í alla þá hluti sem kerfið sjálft þarfnast en lítið sem ekkert í þá hluti sem almenningur þarfnast; atvinnulífið, heilbrigðiskerfið, samkeppnishæfni og skattalækkanir. Þegar við tölum um fjárfestingu þá eigum við ekki eingöngu við steypu eða stórar framkvæmdir heldur líka fjárfestingu í fólki. Hvað í þessu frumvarpi dregur úr byrðum heimilisins? Hvað í þessu frumvarpi eykur frelsi fólks til að velja sitt eigið líf?

Við í Sjálfstæðisflokknum höfum alltaf lagt áherslu á skýra forystu í ríkisfjármálum og það er einmitt það sem vantar hér. Við sjáum t.d. enga raunverulega stefnu um hvernig eigi að draga úr ríkisútgjöldum í hlutfalli við landsframleiðslu sem ætti að vera meginmarkmið. Við sjáum ekki heldur neina tilraun til að tengja þessi viðbótarframlög við niðurstöðu fjármálaáætlunar. Við sjáum aftur á móti útgjöld sem virðast ákveðin á síðustu stundu án þess að fyrir liggi greining á áhrifum þeirra. Við sjáum framlög til ýmissa málaflokka sem virðast koma í kjölfar samkomulags milli ráðherra eða flokka en ekki vegna þarfar heldur vegna pólitískrar friðþægingar.

Við getum hins vegar ekki talað um þennan bandorm án þess að nefna hvernig ríkisstjórnin notar krónutöluskattana. Hér er ekki bara verið að stilla einhverjar tölur af á blaði. Hér er verið að hækka bensíngjöld, olíugjöld, kolefnisgjald, bifreiðagjöld, áfengisgjöld, tóbaks- og nikótíngjöld, úrvinnslugjöld og framlög til Ríkisútvarpsins, allt í einni lotu. Allt þetta eru gjöld sem fólk finnur fyrir alla daga ársins. Það er sagt að þetta sé bara svo lítil prósenta, að þetta sé allt svo mjög eðlileg breyting. Þetta er eiginlega bara tæknileg breyting, er sagt, leiðrétting. En svo þegar þessar litlu breytingar eru taldar saman þá verða þetta milljarðar fyrir ríkissjóð. Þessir sömu milljarðar eru teknir af heimilum og fyrirtækjum í landinu.

Þetta er pólitísk ákvörðun um að láta heimilin bera meiri byrðar á sama tíma og talað er um að ná niður verðbólgu og létta undir. Við verðum líka að horfa á það hvernig þessir skattar leggjast á landið. Krónutöluskattar á eldsneyti og akstur bitna hlutfallslega mest á fólki sem hefur minnst svigrúm til að aðlaga sig, fólki sem býr utan höfuðborgarsvæðisins, þarf að keyra til vinnu, sækja heilbrigðisþjónustu, keyra börnin í skóla og íþróttir. Fyrirtæki og íþróttafélög úti á landi horfa upp á að ferðakostnaður hækki hvort sem um er að ræða rútuferðir, flutninga eða venjulegan rekstur. Þetta er raunverulegt byggðamál þótt það sé falið inni í fjáraukalögum.

Frú forseti. Þá kem ég að ferðaþjónustunni og umræðunni um kílómetragjald sem er órjúfanlegur hluti þessarar umræðu. Ferðaþjónustan er ekki bara ein atvinnugrein af mörgum, hún er grunnatvinnugrein hér á Íslandi, lífæð fjölmargra byggðarlaga. Hún skapar störf fyrir ungt fólk, hún heldur uppi þjónustu sem annars væri ekki til staðar og hún skilar okkur verðmætum gjaldeyristekjum. Við vitum jafnframt að staðan í ferðaþjónustunni er ekki eins og hún var. Afkoma margra fyrirtækja hefur versnað, skuldir hafa aukist og óvissan er allt í einu orðin mikil. Í slíkum aðstæðum væri eðlilegt að ríkisvaldið sýndi skilning og myndi ekki bæta enn frekari álögum á greinina. Í staðinn heyra undir fyrirtækin ný gjöld eins og kílómetragjaldið sem leggst þyngst á bílaleigur og akstur ferðamanna. Bílaleigurnar eru burðarstólpi ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni. Þær tengja ferðamenn við hótelin, gistiheimilin, veitingastaðina, afþreyinguna og náttúruperlurnar. Þegar kostnaður bílaleiga er hækkaður með gjöldum og sköttum þá kemur það fram í hærra verði, minni þjónustu og minni fjárfestingu. Það er bein ógn við þau störf og þau tækifæri sem byggðir landsins byggja á.

Frú forseti. Hins vegar snýr eitt af alvarlegustu atriðunum í þessari heildarmynd beint að heimilunum, þ.e. fyrirhuguðu afnámi samsköttunar hjóna og sambúðarfólks. Þar blasir við mjög skýr stefnumunur á milli Sjálfstæðisflokksins og flokkanna sem nú mynda ríkisstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn hefur nefnilega alltaf litið á fjölskylduna sem hornstein samfélagsins og vill að skattkerfið endurspegli það. Samsköttun er ekki sérhagsmunatæki fyrir fáa. Hún hefur hjálpað um 15.000 fjölskyldum að mæta tímabundnu tekjufalli hjá öðrum makanum. Það getur verið vegna fæðingarorlofs, vegna þess að foreldrið lengir töku orlofs til að brúa bil þar til leikskólapláss fæst, vegna náms, veikinda eða vegna þess að makinn vinnur tímabundið erlendis eða langt að heiman. Í öllum þessum tilvikum er það heimilið sem stendur saman, ekki einstaklingurinn einn. Með afnámi samsköttunar er verið að segja við fjölskyldur: Þið berið áfram sameiginlega ábyrgð á skuldum og börnum en þið fáið ekki lengur að njóta þess í skattkerfinu að tekjurnar eru sameiginlegar þegar slæmir tímar koma. Þetta er vitlaus forgangsröðun. Ef eitthvað á að verja í skattkerfinu þá eru það úrræði sem hjálpa fjölskyldum að komast í gegnum viðkvæm tímabil án þess að fólk þurfi að gefast upp á námi, gefa barneignir upp á bátinn eða þátttöku í atvinnulífi.

Frú forseti. Það er stóra myndin sem á að skipta hér máli. Stóra myndin í dag er þessi: Skattbyrðin hefur aldrei verið hærri á Íslandi, vaxtabyrðin hefur sjaldan verið þyngri og ríkisumsvif hafa aldrei verið meiri. Þetta eru staðreyndir. Þegar skattbyrðin hækkar og ríkisútgjöld aukast án þess að sjáanlegur árangur komi fram þá minnkar traust almennings. Fólk spyr: Hvert fara peningarnir mínir og af hverju bætist ekki við þjónustuna sem ég fæ? Af hverju er ég að borga meira en ég er að fá minna? Þessar spurningar eru réttmætar og þeim er ekki aðeins beint að þessu frumvarpi, þær eru hávær gagnrýni á þann stjórnunarstíl sem ríkisstjórnin hefur tileinkað sér; að vaða áfram án langtímasýnar, að hækka álögur í skjóli aðstæðna og kalla það tiltekt, að flækja kerfin í stað þess að einfalda þau.

Í ræðum þingmanna Sjálfstæðisflokksins í þessu máli hafa komið fram mikilvæg sjónarmið sem vert er að endurtaka hér. Við höfum spurt: Hver á að sinna velferðarþjónustu? Erum við að færa fleiri og fleiri verkefni undir ríkið á kostnað sveitarfélaga og einkaaðila? Er það ávinningur? Við höfum líka spurt: Hversu langt eigum við að ganga í ríkisábyrgð? Hvar liggja mörkin á milli opinberrar ábyrgðar og einstaklingsfrelsis? Hvar eru mörkin milli stuðnings og afskipta? Þetta eru spurningar sem snerta kjarna stefnu okkar í Sjálfstæðisflokknum. Við trúum því að velferð verði best tryggð með frelsi, að lífsgæði verði best aukin með ábyrgri nýtingu fjármuna en ekki með sífellt stækkandi ríkisútgjöldum. Það þarf ekki bara að spyrja hvað við ætlum að gera, heldur líka hvað við ætlum ekki að gera.

Frú forseti. Það er einkenni góðrar stjórnar að hún viti ekki aðeins hvað hún vill gera heldur líka hvað hún vill ekki gera. Við í Sjálfstæðisflokknum höfum ekki verið tilbúin að skrifa upp á endalausar útgjaldahækkanir án stefnu. Við höfum ekki samþykkt skattahækkanir sem eru faldar í orðalagi um aðhald á tekjuhlið og að loka glufum í kerfinu. Við trúum því einfaldlega að fólk eigi betra skilið og við trúum því að fjárlagafrumvarpið eigi að endurspegla þá trú. Þetta frumvarp, bandormurinn, segir okkur ekki söguna um það hvernig Ísland ætlar að vinna sig út úr efnahagslegum erfiðleikum. Það segir okkur ekki hvernig við ætlum að styðja við sprota og frumkvöðla og það segir okkur ekki hvernig við ætlum að létta undir með fólki sem stendur í harðri baráttu við að reka heimili sitt og fyrirtæki sín.

Það sem þetta frumvarp segir okkur, frú forseti, er einfaldlega þetta: Að ríkisstjórnin treysti sér ekki til að setja skýr markmið, skýra forgangsröðun og skýra sýn fyrir Ísland. Það er ekki viðunandi. Við í Sjálfstæðisflokknum viljum stefnu sem snýr að fólki, stefnu sem ber virðingu fyrir því sem fólk hefur lagt af mörkum, stefnu sem byggir á frelsi, ábyrgð og réttlæti. Þegar við lítum til næstu skrefa þá verður það að vera verkefni okkar að krefjast meiri fagmennsku í opinberri fjármálastjórn — minna flökt og meiri sýn. Traustari grunnur er okkur öllum til hagsbóta.