breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég tók eftir því að hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir fór, eins og ég hef gert og fleiri hér, að leika sér aðeins með öll þessi nýyrði, öll þessi huggulegu nöfn sem búið er að setja á skattahækkanir. Eitt af því er „að veita ekki frekari skattafslætti“ frekar en að hækka skatta og „tiltektin“ auðvitað. Og nú er verið að taka til á einu sviði sem hv. þingmaður nefndi í sinni ræðu og ég hef nokkrum sinnum komið inn á, þ.e. að ég á mjög erfitt með að skilja pólitíkina í þeirri tiltekt — sérstaklega komandi frá flokki eins og Samfylkingunni sem notar orðið jöfnuður í öðru hverju orði — sem felst í því sem við köllum yfirleitt bara samsköttun hjóna, allt undir því yfirskini að það séu bara einhverjir ofurlaunamenn sem njóti slíks. En það liggur beinlínis í hugtakinu samsköttun hjóna að það eru hjónin sem njóta þess bæði en ekki bara annar aðilinn. Þó að það komi bara fram á launaseðlinum hjá öðrum þá skilar það sér inn á heimilið þar sem hjónin búa bæði og eiga sín börn, og börnin njóta þess. Allt í einu er Samfylkingin, einhver sósíaldemókratískur flokkur með ofuráherslu á sænsk fjölskyldugildi, að hjóla í samsköttun hjóna, sem meira að segja fólk lengst til hægri hefur ekki látið sér detta í hug að snerta. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvert hennar mat sé á því hvers vegna þetta fari af stað núna. Ég er hættur að verða hissa á skattahækkunum Viðreisnar því að þau virðast ekki standa fyrir neitt nú orðið, en ég hélt að ég þekkti Samfylkinguna.