157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[14:47]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég er jafn undrandi og hv. þingmaður á því að sá flokkur sem tengir sig við jafnaðarstefnu og segist vera mesti jafnaðarflokkur landsins skuli hjóla í hornstein samfélagsins sem er hin heilaga eining fjölskyldan. Eins og ég rakti í máli mínu áðan þá vekur það auðvitað mikla undrun að fjölskyldan eigi áfram að bera ábyrgð á börnum sínum og skuldum sínum en megi ekki deila byrðunum í sinni tekjuöflun, hún má deila þeim í skuldunum. Þetta er óskiljanlegt og líka vegna þess að í aðdraganda kosninga á síðasta ári, eins og margoft hefur verið tekið fram, þá töluðu þessir flokkar, Samfylkingin og Viðreisn, um að þeir ætluðu ekki að hækka skatta. Þeir ætluðu ekki að hækka skatta á venjulegt fólk í landinu og þess vegna sætir það furðu að 30.000 einstaklingar, 15.000 fjölskyldur, sem hafa nýtt sér samsköttun hjóna skuli ekki teljast til venjulegs fólks. Ég vil ítreka það að þetta hefur verið leið sem hefur hjálpað mörgum, sérstaklega ungu fólki sem er kannski á erfiðasta stað í sínu lífi; þegar fólk er að byggja sig upp og stofna fjölskyldu og þarf að ráðast í mestu fjárfestingu ævi sinnar, að eignast húsnæði, og á sama tíma að eignast börn. Það getur þannig skipt verulegu máli fyrir fólk að geta notið þess skattahagræðis sem þarna er. En mig langaði líka — já, ég verð að gera það í seinna andsvari.