157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[14:49]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Þetta sætir furðu. Þegar ég segi orðið Samfylking upphátt þá held ég að mjög margir fái hughrif um sænska velferðarríkið og sjái fyrir sér vísitölufjölskyldu á ljósbláum Volvo í raðhúsi í úthverfi þar sem annar aðilinn er kennari ef ekki báðir, í það minnsta báðir opinberir starfsmenn; að jafnaðarmannaflokkar vilji umfram allt verja allt sem heitir fjölskyldu eitthvað. Það er ímyndin. Staðreyndirnar tala svo allt öðru máli. Nú síðustu daga höfum við farið ítrekað yfir hækkandi álögur og skatta á allt fólk sem að þeirra mati er ekki venjulegt; líklega er venjulegt fólk útdautt, við finnum ekki lengur venjulegt fólk í þessu landi því að það var fólkið sem átti ekki að skattleggja. Þegar ég hugsa um aðför að samsköttun hjóna, af hendi þeirra sem nota hugtakið jafnaðarmennska í annarri hverri setningu, þá dettur mér í hug bók. Ég veit ekki, frú forseti, hvort þetta má en forseti skammar mig ef þess þarf því að ég er ekki búinn að þýða þetta og verð að fá að nota enskt heiti bókarinnar Animal Farm — Dýrabær eða eitthvað, ég veit ekki alveg, frú forseti, kannski kemst ég upp með þetta.

(Forseti (ÞSv): Dýrabær.)

Takk, frú forseti. Þar er einmitt farið nákvæmlega yfir þetta. Það eru allir jafnir þangað til að einhver öfund kemur upp einhvers staðar og þá verða sumir jafnari en aðrir. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hún sjái þessi sömu líkindi og ég milli aðfarar að samsköttun hjóna og þessarar bókar, sem ég veit núna að heitir Dýrabær.