breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir. Af því að hv. þingmaður nefnir þessa sögu, Dýrabæ, þá er margt í atburðarás síðustu mánaða, í atburðarás nýrrar ríkisstjórnar, sem minnir á þá sögu. Við höfum rætt hér í dag hvernig brotnað hefur upp úr vinnulagi og hvernig hlutir eru keyrðir í gegnum nefndir án þess að mál fái eðlilegan framgang í nefndinni og eðlilega umfjöllun og án þess að fólkinu í landinu sé gefið tækifæri til að senda inn umsóknir og koma að málum.
Mig langaði að nefna það sem hv. þingmaður kom inn á, því að ég náði því ekki í fyrra svari mínu, um allan þann nýyrðaflaum sem flæðir núna frá ríkisstjórninni. Það er einhvern veginn eins og þeim sé algerlega fyrirmunað að kalla hlutina réttum nöfnum. Þess vegna segi ég: Það hefur lítið komið frá þessari ríkisstjórn annað en skattahækkanir og skattahækkanir. Þó að ríkisstjórnin rembist eins og rjúpan við staurinn við að kalla þetta frekari skattafslátt — þetta er jöfnun, þetta er tiltekt, þetta er að loka glufum, þetta er leiðrétting, þetta er menningarframlag, o.s.frv. — þá eru þetta skattahækkanir á fólkið í landinu. Ég ætla að koma aftur að vinnulaginu því að eins og í þessum fjárauka, ég held ég fari rétt með, þá bárust nefndinni hvorki fleiri né færri en 84 umsagnir um málið, margar mjög ítarlegar, rökfastar og studdar tölulegri greiningu. Þær sýna svart á hvítu að þessi gjaldtökuáætlun, skattahækkanir, sem ríkisstjórnin ætlar nú að keyra í gegn mun valda skaða, ekki bara óþægindum, ekki bara aðlögunarvanda heldur raunverulegum skaða í atvinnulífi, byggðum og samkeppnishæfni og mun skerða traust á stjórnsýslu ríkisins.