157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:14]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir mjög innblásna ræðu hér um þá skattaöldu og -bylgju sem gengur yfir landslýð þessa dagana og þessi misserin. Það er eiginlega þyngra en tárum taki að horfa upp á allar þessar skattahækkanir, allar þessar álögur sem verið er að leggja á fólk og fyrirtæki um allt land. Hæstv. ríkisstjórn ber höfðinu við steininn þrátt fyrir öll varnaðarorð sem koma í umsögnum frá alls kyns samtökum, hagsmunaaðilum og fyrirtækjum um hverjar afleiðingar þessara skatta- og gjaldahækkana verða. Þetta er bara eins og að skvetta vatni á gæs. Það á bara að halda áfram þrátt fyrir að við sjáum alveg hverjar afleiðingarnar verða.

Nú erum við hv. þingmaður úr sama kjördæmi, Norðausturkjördæmi, en hann er fæddur, uppalinn og búsettur á Húsavík. Við höfum svo sem oft rætt báðir tveir hér í ræðustólnum um það ástand sem nú er á Húsavík í atvinnumálum, þó svo að við höfum báðir verið á ráðstefnu um daginn þar sem íbúar horfa björtum augum til framtíðar og uppbyggingar á Bakka; en samt sem áður er ástandið mjög alvarlegt.

Mig langaði kannski að fá að heyra álit hv. þingmanns á öllum þessum gjöldum; kílómetragjaldi, vörugjaldi, kolefnisgjaldi og þar fram eftir götunum. Hvaða áhrif mun það hafa, t.d. á ferðaþjónustuna, sem er ein af lykilatvinnugreinum Húsavíkur eins og víðar í Norðausturkjördæmi, í hans heimabæ þar sem við höfum kannski líka verið að horfa á aðrar áskoranir?