157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:16]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir fyrirtaksspurningu. Staðan í Norðurþingi er ekki góð. Ætli það láti ekki nærri að eftir að slökkt var á ofnunum í PCC og fólkið fór þaðan vanti svona nálægt 50 milljónum í sveitarsjóðsreikninginn um hver mánaðamót. Það sem þarf að gerast þarf að gerast hratt. Norðurþing mun ekki geta staðið af sér langa bið eftir því að koma PCC af stað aftur eða nýju verkefni á Bakka. Af því að hv. þingmaður vék að þessari ráðstefnu sem við vorum á, sem bar einmitt yfirskriftina Framtíðin á Bakka, þá er staðan sem betur fer sú að það eru ýmis verkefni og ýmsir aðilar sem hafa mikinn áhuga á því að byggja upp á Bakka en það mun taka tíma. Tíminn er dýr þegar það eru tugir milljóna um hver mánaðamót sem vantar í kassa.

Að hinu sem hv. þingmaður nefndi. Það er auðvitað mjög erfitt að horfast í augu við það — hafandi reynslu af því hvað ferðaþjónustan getur gert fyrir samfélög. Þegar við fórum hér á sínum tíma í gegnum efnahagshrunið þá var það ferðaþjónustan sem var að rísa sem bjargaði okkur. Nú þurfum við á okkar öflugu ferðaþjónustu að halda í Norðurþingi sem og annars staðar. En þá ætlar ríkisstjórnin að bæta í áfallið í Norðurþingi. Það er ekki nóg að við höfum fengið það verkefni í fangið að PCC sé stopp heldur ætlar ríkið að fara að þvælast fyrir þeim fyrirtækjum sem hefur verið að ganga vel, eru að skaffa fólki vinnu, eru að greiða inn í sveitarsjóðinn, eru að greiða til ríkisins og draga að sér ferðamanninn sem smitar í öll fyrirtækin. Bílarnir hjá ferðamönnunum bila og þeir þurfa að fara á verkstæði, þeir fara í bakaríið sem fer að opna — það er að koma nýtt bakarí á Húsavík — og þeir fara á dekkjaverkstæði, á matsölustaði o.s.frv.