breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir gott svar. Mig langar kannski að halda áfram á svipuðum nótum varðandi ástandið í Norðurþingi. Eins og staðan blasir við manni núna þá eru það ekki bara kílómetragjöldin, það er ekki bara hækkun á vörugjöldum, kolefnisgjöldum, ferðamannaskatti og fleira sem mun leggjast með mjög íþyngjandi hætti á samfélagið í Norðurþingi. Við megum ekki gleyma því að þegar bílaleigubílar hækka þá er það nú bara þannig að við sem búum á Austfjörðum og á norðausturhorninu, eins og hv. þingmaður, sem og Vestfirðingar — að það verða minni líkur á því að ferðamenn keyri alla leið þangað á viðkomandi áfangastaði. Þetta gæti minnkað umferðina til okkar sem þar búum og til þeirra sem eru búnir að byggja upp þjónustu í kringum það.
Mig langar í þessu sambandi aðeins að koma inn á það, af því að það tengist í rauninni atvinnumálunum og öllum þessum sköttum og aðgerðum ríkisstjórnarinnar, að núna blasir það við að hæstv. innviðaráðherra, sem einhverra hluta vegna fer með 5,3% pottinn, er búinn að boða það, og það má lesa það á milli lína, að það eigi að minnka byggðakvótann. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvaða áhrif hann telji að það myndi hafa á atvinnulífið eins og á Raufarhöfn sem keyrir mest á byggðakvóta og hvaða áhrif það getur haft?