157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:21]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Þær eru vel valdar spurningarnar hjá hv. þm. Jens Garðari Helgasyni því að þær draga fram öll dramatískustu svörin. Að ætla að fara að hreyfa við byggðakvóta í samhengi við starfsemi á Raufarhöfn og fleiri slíkum stöðum sem hafa átt í mjög langri harðvítugri varnarbaráttu — fólksfækkun, fasteignaverð hefur fallið með slíkum hætti að ekkert er byggt, ef byggingarkostnaður er fjórfaldur á við húsnæðisverð þá gefur það augaleið. Hv. þingmaður spyr hvaða áhrif þetta geti haft. Þetta er í raun og veru enn eitt lóð á þær vogarskálar að gera þessum stöðum erfiðara fyrir að rétta úr sér. Það sama gildir, hv. þingmaður, varðandi innviðagjaldið. Þó að það standi til að lækka það niður í 1.600 kr., sem er lægri tala en upphaflega stóð til, þá hef ég séð töflurnar frá höfnum í Norðurþingi til að mynda og Múlaþingi og ég hef séð hvaða afleiðingar svona hrærigrautur og fikt í sköttum getur haft ef þetta kemur fyrirvaralaust. Það verður ekkert öðruvísi með aðgerðir sem snerta kvóta og þennan 5,3% pott. Ef menn fara að hræra mikið í honum með engum fyrirvara þá veit enginn hver afleiðingin verður. Það er mannleg hegðun sem stjórnar því hvað gerist eftir að hér fara út úr þessum sal einhver nýsamþykkt lög. Ég er hræddur, ekki síst eftir að þessi ríkisstjórn tók við, því að mér sýnist hugtakið fyrirsjáanleiki ekkert vera í orðaforðanum.