breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ríkisstjórnin, eða formaður Samfylkingar og nú forsætisráðherra, boðaði hér í aðdraganda kosninga að hún myndi berja niður vexti og verðbólgu með sleggju. En nú get ég ekki betur séð, frú forseti, en að ríkisstjórnin gangi hér fram með algera skattahækkunarsleggju sem hún sveiflar hér nánast blindandi án greininga, án heildarsýnar og án þess að meta raunveruleg áhrif af þessu sleggjukasti sínu á fólk og fyrirtæki.
Mig langar að spyrja hv. þingmann: Telur hann að hægt sé að skattleggja atvinnulífið svona mikið? Telur hann að það sé lausn að skattleggja atvinnulífið niður ef það er aldrei verið að skattleggja atvinnulífið upp þannig að við hjálpum atvinnulífinu? Við sjáum nú þegar samdrátt í skipakomum, við sjáum samdrátt í fjárfestingum, aukinn kostnað fyrir fyrirtækin, versnandi samkeppnishæfni og aðstæður á mörkuðum. Þetta er ekki eitthvert tal, þetta eru ekki einhverjar spár. Þetta eru staðreyndir sem efnahags- og viðskiptanefnd fékk inn á borð til sín í 84 umsögnum sem bárust um þetta frumvarp með afgerandi viðvörunum um áhrif þeirra aðgerða sem hér er verið að boða. Eins og ég hef nefnt hér fyrr í dag var einhver sirkus hér í upphafi árs þar sem ríkisstjórnin óskaði leiðsagnar þjóðarinnar með hagræðingartillögum og hefur ekki nýtt eina einustu, það hefur engin þeirra komið fram. (Forseti hringir.) Ég vil spyrja hv. þingmann: Telur hann virkilega að ríkisstjórnin sé að hjálpa atvinnulífinu nú um stundir?