157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:25]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir spurninguna. Ég hef alltaf svolítið gaman af svona beinum spurningum; þetta er eiginlega já eða nei-spurning og svarið er nei. En hins vegar var aðdragandinn að spurningunni þannig að það verður að bregðast við því. Af því að við erum að nota þessa myndlíkingu sem hæstv. forsætisráðherra bjó til og gerði frægt vídeó um, sleggjuna blessuðu, þá er ég reyndar þeirrar skoðunar að sleggjan sé að virka, bara alls ekki þar sem henni var ætlað að virka. Hún er núna í fullri vinnu við að berja niður verðmætasköpun í landinu. Það er það sem verið er að nota sleggjuna í. Það hefði kannski mátt segja fólki frá því þegar var verið að búa til þessar auglýsingar og þessi vídeó, þennan áróður í aðdraganda kosninganna, þar sem lofað var að beita sleggjunni á vexti og verðbólgu; að geta þess þá í leiðinni að það stæði líka til að nota hana á verðmætasköpun. Ég hugsa að það hefði haft áhrif á einhverja kjósendur ef þeir hefðu fengið að vita það fyrir fram.

Síðan nefndi hv. þingmaður í aðdragandanum einnig leiðsögnina sem ríkisstjórnin kallaði eftir. Ég verð að gefa ríkisstjórninni það að þetta er það sem hún er góð í; að búa til ímynd, hugtök og orð. Þegar ríkisstjórnin fór af stað og kallaði eftir tillögum til sparnaðar þá held ég að það sé eitthvert flottasta PR-móment sem ég hef séð í pólitík. Það vissu allir að það kæmu inn þúsundir af tillögum sem myndu bara alls ekkert vera í þá átt sem ríkisstjórnarflokkarnir vilja fara, eins og raunverulegt aðhald, það sýnir 143 milljarða kr. vöxtur fjárlaganna.